Fjölmenning og börn : temjum okkur umburðarlyndi og samkennd í skólastarfi

Þessi ritgerð er unnin af nemendum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þetta er heimildaritgerð sem fjallar um hvernig fjölmenning birtist yngri börnum grunnskóla. Markmið ritgerðarinnar var tvíþætt. Annars vegar að fjalla um mikilvægi fjölmenningarlegrar kennslu strax á fyrstu árum barna og hins...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hanna Lilja Sigurðardóttir 1988-, Stella Stefánsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12608
Description
Summary:Þessi ritgerð er unnin af nemendum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þetta er heimildaritgerð sem fjallar um hvernig fjölmenning birtist yngri börnum grunnskóla. Markmið ritgerðarinnar var tvíþætt. Annars vegar að fjalla um mikilvægi fjölmenningarlegrar kennslu strax á fyrstu árum barna og hins vegar að taka fram árangursríkar aðferðir fyrir kennara til þess að koma erlendum nemendum inn í starf með íslenskum nemendum. Enn fremur reynum við að undirstrika mikilvægi þess að alast upp við fjölmenningarleg sjónarhorn og teljum við það að vera góða leið til þess að umburðarlyndi og samkennd verði okkur eðlislæg. Í fyrri hluta ritgerðarinnar tökum við fram lög og reglur sem stjórnendum grunnskóla á Íslandi ber að fylgja. Þetta eru grunnskólalög sem eru gefin út af Alþingi, Aðalnámskrá grunnskóla sem er gefin út af mennta- og menningarmálaráðuneyti og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna. Við kynntum okkur starfsemi þriggja grunnskóla á Íslandi og eins leikskóla sem vinna með fjölmenningu í skólastarfi sínu. Í síðari hluta ritgerðarinnar fjöllum við um leiðir fyrir kennara til þess að bæta fjölmenningu inn í starf sitt með nemendum. Við tökum fram kennsluaðferðir, verkefni, leiki og hugmyndir um námsmat í þessum kafla. Við ljúkum ritgerðinni á samantekt. The following essay was written by students in the Education Department of The University of Iceland. This is a research essay discussing how multiculturalism appears to the youngest children in elementary schools. The goal of it was twofold. On one hand to discuss the importance of multicultural education in the first years in a child’s life and on the other hand to state effective actions for teachers to integrate foreign children into the work the Icelandic students are doing. Moreover we try to underline the importance to grow up with multicultural points of view and we think it is a good way for tolerance and compassion to be inherent to us. In the first part of the essay we mention laws and regulations that schools must follow. These are elementary school laws ...