Eðlisvísindi : íþróttir og útivist

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þetta verkefni er unnið sem lokaverkefni á þriðja ári í kennaradeild Háskólans á Akureyri, vorið 2005. Um er að ræða verkefni, þar sem tengd eru saman viðfangsefni eðlisvísinda, auk stærðfræði, við íþróttir og útivist með æfingum og dæmu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Valdimar Hjaltason
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1260
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þetta verkefni er unnið sem lokaverkefni á þriðja ári í kennaradeild Háskólans á Akureyri, vorið 2005. Um er að ræða verkefni, þar sem tengd eru saman viðfangsefni eðlisvísinda, auk stærðfræði, við íþróttir og útivist með æfingum og dæmum fyrir unglinga í grunnskóla. Í verkefninu er bent á þá kosti sem samþætting af þessu tagi getur haft í för með sér og þeir settir fram í tengslum við bakgrunnsþekkingu nemenda, áhugahvöt, útivist og hreyfingu. Flestir nemendur ættu að geta tengt athafnir úr íþróttum og útivist við fyrri þekkingu og eins geta íþróttir höfðað til áhuga þeirra. Komið hefur í ljós að aukinn námsáhugi getur leitt af sér bættan árangur og jákvæðara viðhorf til náms og skóla. Flestar æfingarnar fela í sér hreyfingu og útivist og er ekki vanþörf á slíku í ljósi þess að offita er aukið vandamál hérlendis. Verkefninu er skipt upp í nokkra kafla. Í fyrsta kafla, inngangi, er verkefnið kynnt. Annar kafli hefst á því að hugtökin náttúrufræði og eðlisvísindi eru skilgreind og síðan er varpað ljósi á hvers vegna æfingar og dæmi af þessu tagi eru tilvalin til kennslu í eðlisvísindum á unglingastigi. Kaflarnir sem á eftir fylgja eru svo hver og einn tileinkaðir ákveðinni íþrótt, það er hlaupi, kúluvarpi, hástökki og sundi, sem notuð er sem grunnur undir eðlisfræðilegar æfingar og dæmi handa nemendum.