Hindranir ungra innflytjenda í skipulögðu tómstundastarfi : eigindleg rannsókn á hindrunum ungra innflytjenda í skipulögðu tómstundastarfi í Reykjavík

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hverjar séu hindranir þess að ungir innflytjendur taki þátt í skipulögðum tómstundum í Reykjavík. Það er þekkt í öðrum löndum að þátttaka ungra innflytjenda í skipulögðum tómstundum er almennt minni en þátttaka innfæddra. Á Íslandi hefur komið fram marktækur munu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gyða Kristjánsdóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12543
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að kanna hverjar séu hindranir þess að ungir innflytjendur taki þátt í skipulögðum tómstundum í Reykjavík. Það er þekkt í öðrum löndum að þátttaka ungra innflytjenda í skipulögðum tómstundum er almennt minni en þátttaka innfæddra. Á Íslandi hefur komið fram marktækur munur á þátttöku en lítið sem ekkert verið skoðað hvað það er sem hindrar unga innflytjendur í þátttöku. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við þrjá unga innflytjendur á aldrinum 15-16 ára. Helstu niðurstöður lýstu því að menningarlegur munur hefur áhrif á þátttöku og snýr það að því að foreldrar viðmælenda þekkja lítið sem ekkert til starfseminnar. Tóku viðmælendur einnig fram að þeir þekki til þess að fjárhagsleg staða og félagslegt net hafi áhrif á þátttöku ungra innflytjenda. Kom fram að enginn viðmælendanna stundar tómstundir sem fela í sér kostnað við þátttöku og að þeir þurfi oft að hjálpa öðrum ungum innflytjendum að skilja það sem er í boði. Tel ég niðurstöðurnar styðja mikilvægi þess að huga að þessum minnihlutahópi hvað varðar tómstundir, veita vettvangi tómstunda í borginni upplýsingar um hvað það er sem stendur í vegi þátttöku þessara einstaklinga og hvernig megi gera betur til þess að auka þeirra þátttöku í skipulögðum tómstundum. Frístundamiðstöðin Miðberg.