Hvað einkennir bestu hópfimleikastúlkur á Íslandi? - Áhrifaþættir á árangur íþróttamanna

Markmi ritgerðarinnar og rannsóknarinnar sem er hluti hennar var að skoða hvað einkennir bestu hópfimleikastúlkur á Íslandi og skoða áhrifaþætti sem skipta máli um árangur ungra íþróttamanna. Þau atriði sem skoðuð eru sérstaklega og lögð voru til grundvallar í rannsókninni eru kenningar og rannsókni...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Steinar Þór Ólafsson 1988-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12524
Description
Summary:Markmi ritgerðarinnar og rannsóknarinnar sem er hluti hennar var að skoða hvað einkennir bestu hópfimleikastúlkur á Íslandi og skoða áhrifaþætti sem skipta máli um árangur ungra íþróttamanna. Þau atriði sem skoðuð eru sérstaklega og lögð voru til grundvallar í rannsókninni eru kenningar og rannsóknir fræðimanna um áhrif svonefnds hlutfallslegs aldurs og um úthugsa!ar æfingar (e. deliberate practice). Einnig umfjöllun þeirra um áhrif vina og foreldra á íþróttamanninn og árangur hans. Þá eru skoðaðir þættir eins og áhugahvöt og sérhæfing. Spurningalisti var lagður fyrir 50 stúlkur í meistaraflokki Gerplu, Ungmennafélags Selfoss og Stjörnunar en það eru allir meistaraflokkar hópfimleikali!a kvenna á Íslandi. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að stúlkurnar eiga það sameiginlegt að fá mikinn stuðning frá foreldrum og vinum og finna að sama skapi fyrir lítilli pressu frá þeim um að skila sérstökum árangri. Jafnframt eru þær almennt tilbúnar að færa þær fórnir sem krafist er af þeim til þess að ná árangri og njóta þess að æfa fimleika. Á hinn bóginn kemur fram að þáttur eins og hlutfallslegur aldur hefur ekki merkjanleg áhrif innan þessa hóps.