Hagur barna er hagur samfélags : aðferðir grenndarkennslu í leikskólum, leið til sjálfbærrar þróunar

Verkefnið er lokað til 12.8.2012. Verkefnið Hagur barna er hagur samfélags er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2012. Viðfangsefnið er grenndarkennsla og umhverfismennt í tengslum við markmið nýrrar menntastefnu og breyttar áherslur Aðalnámskrár (2011...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigríður Hinriksdóttir 1970-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12516
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 12.8.2012. Verkefnið Hagur barna er hagur samfélags er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2012. Viðfangsefnið er grenndarkennsla og umhverfismennt í tengslum við markmið nýrrar menntastefnu og breyttar áherslur Aðalnámskrár (2011) varðandi „menntun til sjálfbærrar þróunar“. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á kosti þess að nota aðferðir grenndarkennslu og umhverfismenntar á markvissan hátt í skólastarfi til þess að efla umhverfis- og samvitund barna og samfélagsins um leið. Efnið er skoðað í sögulegu samhengi í byrjun til þess að varpa ljósi á þróun lykilhugmynda menntunar og uppeldis á Íslandi og mikilvægi þess að menntastefna og áherslur Aðalnámskrár séu lifandi og í tengslum við söguna, ríkjandi viðhorf og þarfir samtímans í nútímasamfélagi. Þeirri umræðu er svo fylgt eftir með fræðilegri umfjöllun um efnið út frá sjónarhorni hugsmíðahyggju. Helstu hugmyndum hinna áhrifamiklu fræðimanna, John Dewey, Jerome Bruner, Loris Malaguzzi, Jean Piaget og Lev Vygotsky, eru gerð skil með tilliti til áhrifa umhverfis, reynslu og samskipta á nám og alhliða þroska barna á leikskólaaldri. Fjallað er um mikilvægi þess að virkja börn til ábyrgðar í eigin námi og tengja verkefni fyrri þekkingu, umhverfi og sögu. Umræðan er studd með tilvísunum í ýmsa fræðimenn og fræðigreinar um umhverfismennt og siðfræði í íslensku og alþjóðlegu samhengi. Inn í umræðuna fléttast að auki sýn höfundar á efnið. Höfundur leitast við að sýna fram á samfélagslegan og umhverfislegan ávinning þess að kennarar líti sér nær og nýti þau tækifæri sem gefast á líðandi stund til kennslu í grenndarsamfélögum, í náttúrunni sem í mannlífinu. Það má t.d. gera með því að virkja minnihlutahópa, fyrirtæki, félög og aðrar stofnanir til þátttöku og samstarfs við leikskóla í ýmsum verkefnum. Með því móti getur íslenskt leikskólastarf lagt sitt af mörkum til að bæta samfélagið og efla samvitund og ábyrgð bæjarbúa, stórra sem smárra, til framtíðar. This essay, entitled “A Child´s Advantage ...