Að bjóða hverjum nemanda nám við hæfi: námsreynsla og þarfir nemenda í framhaldsskólum í ljósi brotthvarfs: greinargerð um skrif þriggja tímaritsgreina í tengslum við meistaranám í kennaradeild HA veturinn 2011-2012
Síðari hluti lokaður til 1.7. 2013 Meistaraprófsverkefni það sem hér er lagt fram er byggt á áætlun sem gerð var í upphafi þess haustið 2011 um skrif þriggja fræðigreina sem birtar yrðu í ritrýndum tímaritum. Ætlunin var að greinarnar yrðu hver um sig sjálfstætt framhald meistaraprófsritgerðar minna...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Master Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2012
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/12515 |
Summary: | Síðari hluti lokaður til 1.7. 2013 Meistaraprófsverkefni það sem hér er lagt fram er byggt á áætlun sem gerð var í upphafi þess haustið 2011 um skrif þriggja fræðigreina sem birtar yrðu í ritrýndum tímaritum. Ætlunin var að greinarnar yrðu hver um sig sjálfstætt framhald meistaraprófsritgerðar minnar við Háskóla Íslands árið 2009. Þar var stuðst við hugtökin trú á eigin færni (e. self-efficacy) og hvata til náms (e. motivation) til að leita svara við því hvers vegna sumir nemendur á Almennri námsbraut í VMA hættu námi á meðan aðrir héldu því áfram. Fyrsti hluti þessa verks er samantekt á greinunum þremur. Að því búnu eru greinarnar birtar í þessari röð: Í fyrstu greininni er fjallað um skilin á milli grunnskóla og framhaldsskóla (e. educational transition) með hliðsjón af því hvað beri að gera til þess að tryggja að vel sé tekið á móti nýnemum og þeim gerð vistin sem best og árangursríkust. Fjallað er um rannsóknir á þessum vettvangi og bent á nokkra þætti sem bæta má í íslenskum framhaldsskólum á þessu sviði. Í annarri greininni eru bornir saman tveir hópar nemenda í VMA; annars vegar hópurinn sem þátt tók í rannsókninni árið 2009 og hins vegar nemendur sem hófu nám í skólanum eftir það góðan árangur í grunnskóla að þeir innrituðust á þær brautir sem þeir kusu. Hóparnir voru bornir saman meðal annars með hliðsjón af trú á eigin færni og þátttöku foreldra í námi þeirra. Í þriðju greininni er fjallað er tilraunaverkefni sem hleypt var af stokkunum í VMA haustið 2011. Um er að ræða námsúrræði er lýtur að einingabæru vinnustaðanámi til framhaldsskólaprófs. Það er ætlað nemendum sem líkur eru á að hætti námi eftir fyrsta árið vegna lítils áhuga og/eða námsörðugleika. Hér eru lögð til grundvallar fyrirmæli er fram koma í lögum um framhaldsskóla árið 2008 um að skólar skuli koma til móts við hvern og einn nemanda og bjóða þeim nám við hæfi. This masters thesis described is based on a study plan made at the beginning of the autumn semester 2011 of publishing three articles in peer-reviewed journals. The intention ... |
---|