The role of art and art making in adolescents’ everyday life : a case study

Myndsköpun er áhrifarík leið fyrir ungt fólk til sjálfsþekkingar þar sem hún veitir tækifæri til að koma skipulagi á og gera áþreifanlega eigin reynslu og upplifanir. Þessu verki er ætlað að varpa ljósi á hlutverk sjónlista og myndsköpunar í daglegu lífi ungra námsmanna, jafnframt því að skoða hvern...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rósa Kristín Júlíusdóttir 1945-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:English
Published: 2001
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1249
Description
Summary:Myndsköpun er áhrifarík leið fyrir ungt fólk til sjálfsþekkingar þar sem hún veitir tækifæri til að koma skipulagi á og gera áþreifanlega eigin reynslu og upplifanir. Þessu verki er ætlað að varpa ljósi á hlutverk sjónlista og myndsköpunar í daglegu lífi ungra námsmanna, jafnframt því að skoða hvernig frásögn þeirra af eigin myndverkum kann að hafa áhrif á mótun sjálfsmyndar. Tveir hópar unglinga á aldrinum þrettán til sautján ára tóku þátt í þessari rannsókn. Annars vegar sex stúlkur og fjórir piltar sem hljóta kennslu í myndlist í sínum grunnskóla, hins vegar fimm stúlkur og fimm piltar sem hafa valið að sækja aukalega nám í myndlist á sérstökum námskeiðum fyrir börn og unglinga (í Myndlistaskólanum á Akureyri). Opin einstaklingsviðtöl við nemendur fóru fram í janúar 2002. Nemendur voru beðnir að koma með eigin myndverk í viðtalið, eitt eða fleiri, sem höfðu sérstaka þýðingu í huga þeirra og var seinni hluti hvers viðtals byggður á frásögn þeirra af þessum verkum. Megin niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að myndsköpun er gefandi í daglegu lífi ungmennanna á margan hátt og kjarna merkingar hennar er að finna í hinu listræna sköpunarferli. Nemendur leggja áherslu á gildi innri ánægju listsköpunar sem er ekki einungis að finna í sköpunarferlinu og / eða sköpunarverkinu heldur er þeim jafnframt hvatning til frekari dáða. Þekking á ‘viðurkenndu’ tungumáli myndlistarinnar opnar leiðir til sjálfsmats sem á móti virkar örvandi og leiðir af sér nýjar markmiðsetningar. Allt eru þetta mikilvægir þættir í listsköpun sem og í mótun sjálfsins. Nemendur eru einnig meðvitaðir um samskiptamöguleika þá sem verk þeirra bjóða uppá til dæmis á túlkun eigin tilfinninga og hugmynda eða að koma skilaboðum áleiðis í mynd. Frásagnir nemenda af eigin myndverkum opnuðu flóðgáttir útskýringa á daglegu lífi þeirra og skýringar þeirra styðja þá skoðun að frásagnarsjálf (narrative identity) sé í raun að skapa eigin lífssögu gegnum munnlega frásögn. Sá kynjamunur sem könnunin sýnir tengist hefðbundnum kynímyndum “umhyggjusamra” stúlkna ...