Summary: | Bakgrunnur: Rannsóknir hafa leitt í ljós mikilvægi hlutverks stjórnenda varðandi samráð og þátttöku starfsfólks við ákvörðunartöku, ásamt því að leggja áherslu á þá þætti í vinnuumhverfinu sem bæta líðan starfsmanna og auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustunni. Þjónandi forysta (servant leadership) hefur náð fótfestu og nýjar rannsóknir undirstrika gildi hugmyndafræðinnar í fyrirtækjum, stofnunum og í heilbrigðisþjónustunni. Þjónandi forysta er byggð á hugmyndafræði Robert K. Greenleaf, sem lagði áherslu á að þjónandi leiðtogi væri fyrst og fremst þjónn, sem virti forn gildi um mannúð og siðgæði og setti umhyggju fyrir velferð annarra framar eigin völdum og vegsauka. Þessar áherslur samræmast niðurstöðum nýrra rannsókna um árangursríka stjórnun og forystu innan heilbrigðisþjónustunnar. Tilgangur rannsóknarinnar: Að kanna hvort stjórnunarhættir með áherslum þjónandi forystu væru til staðar á hjúkrunarsviðum Sjúkrahússins á Akureyri (FSA). Einnig hver afstaða hjúkrunarstarfsfólks væri til starfsánægju, starfstengdra þátta og gæða þjónustu, og hvort möguleg tengsl væru milli þjónandi stjórnunarhátta, starfstengdra þátta og gæða þjónustu. Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn með fyrirlögn spurningakönnunar. Þátttakendur voru hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og millistjórnendur á Sjúkrahúsinu á Akureyri haustið 2011. Niðurstöður: Helstu niðurstöður sýndu að þjónandi forysta einkennir stjórnun og forystu á hjúkrunarsviðum FSA allnokkuð. Undirþátturinn ráðsmennska var sterkastur þáttanna. Starfsánægja mældist mikil og almennt voru þátttakendur ánægðir með gæði þjónustunnar. Undirþátturinn efling hafði sterkasta fylgni við starfsánægju. Marktæk fylgni var á milli eflingar og allra starfstengda þátta, nema vinnuaðstöðu og möguleika á stöðuhækkun. Nokkur fylgni var á milli þjónandi forystu og mats starfsfólks á öryggi skjólstæðinga. Ályktun: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þjónandi forysta er til staðar á FSA og starfsfólk sjúkrahússins er almennt ánægt í vinnunni. Þær styðja niðurstöður fyrri rannsókna um að ...
|