Margt er að læra og mörgu að sinna : nýbrautskráðir kennarar á fyrsta starfsári; reynsla þeirra og líðan
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu og upplifun nýbrautskráðra grunnskólakennara á fyrsta starfsári í íslensku skólaumhverfi. Áhersla var lögð á að kanna hvernig þeir upplifa líðan, móttökur og stuðning í upphafi starfsfe...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2005
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/1247 |
Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu og upplifun nýbrautskráðra grunnskólakennara á fyrsta starfsári í íslensku skólaumhverfi. Áhersla var lögð á að kanna hvernig þeir upplifa líðan, móttökur og stuðning í upphafi starfsferils síns ásamt því að leita álits þeirra á því hvernig þeir telja kennaranám sitt hafa búið sig undir starfið. Átta nýbrautskráðir kennarar frá Háskólanum á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands tóku þátt í rannsókninni. Rannsóknin var eigindleg og voru tekin þrjú viðtöl við hvern þátttakanda. Meginniðurstöður hennar gefa vísbendingar um að nýliðar líti svo á að kennaramenntunin sé aðeins grunnmenntun kennara eða fyrsta skrefið að því að verða fagmenn í starfinu. Vísbendingar eru um að til að nýjum kennurum vegni vel þurfi þeir á mikilli leiðsögn og stuðningi að halda þegar út í starfið er komið, leiðsögn sem nær bæði til faglegra og hagnýtra þátta starfsins en einnig handleiðslu sem styður þá og byggir þá upp gegn álagi og streitu í starfi. Í rannsókninni kemur fram að móttökur og leiðsögn nýrra kennara virðast ómarkvissar og framkvæmd því oft fremur tilviljanakennd. Rannsóknin sýnir að á fyrsta starfsári virðast nýliðar helst hagnýta þá þætti úr kennaranámi sem þeir geta yfirfært beint inn í kennslu sína. Einnig virðast þeir í upphafi starfsferils uppteknir af því sem þeir telja að vanti í námið fremur en hvað það er sem nýtist þeim vel. Fram kemur að margt sem tilheyrir hlutverki og starfssviði kennarans virðist koma þeim á óvart og þeir ekki búnir undir í náminu og varpar rannsóknin ljósi á marga af þessum þáttum. Á grundvelli rannsóknarinnar eru settar fram hugmyndir að úrlausnum er varða móttöku og leiðsögn kennara á fyrsta starfsári. |
---|