Margt er að læra og mörgu að sinna : nýbrautskráðir kennarar á fyrsta starfsári; reynsla þeirra og líðan

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu og upplifun nýbrautskráðra grunnskólakennara á fyrsta starfsári í íslensku skólaumhverfi. Áhersla var lögð á að kanna hvernig þeir upplifa líðan, móttökur og stuðning í upphafi starfsfe...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: María Steingrímsdóttir 1950-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1247
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu og upplifun nýbrautskráðra grunnskólakennara á fyrsta starfsári í íslensku skólaumhverfi. Áhersla var lögð á að kanna hvernig þeir upplifa líðan, móttökur og stuðning í upphafi starfsferils síns ásamt því að leita álits þeirra á því hvernig þeir telja kennaranám sitt hafa búið sig undir starfið. Átta nýbrautskráðir kennarar frá Háskólanum á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands tóku þátt í rannsókninni. Rannsóknin var eigindleg og voru tekin þrjú viðtöl við hvern þátttakanda. Meginniðurstöður hennar gefa vísbendingar um að nýliðar líti svo á að kennaramenntunin sé aðeins grunnmenntun kennara eða fyrsta skrefið að því að verða fagmenn í starfinu. Vísbendingar eru um að til að nýjum kennurum vegni vel þurfi þeir á mikilli leiðsögn og stuðningi að halda þegar út í starfið er komið, leiðsögn sem nær bæði til faglegra og hagnýtra þátta starfsins en einnig handleiðslu sem styður þá og byggir þá upp gegn álagi og streitu í starfi. Í rannsókninni kemur fram að móttökur og leiðsögn nýrra kennara virðast ómarkvissar og framkvæmd því oft fremur tilviljanakennd. Rannsóknin sýnir að á fyrsta starfsári virðast nýliðar helst hagnýta þá þætti úr kennaranámi sem þeir geta yfirfært beint inn í kennslu sína. Einnig virðast þeir í upphafi starfsferils uppteknir af því sem þeir telja að vanti í námið fremur en hvað það er sem nýtist þeim vel. Fram kemur að margt sem tilheyrir hlutverki og starfssviði kennarans virðist koma þeim á óvart og þeir ekki búnir undir í náminu og varpar rannsóknin ljósi á marga af þessum þáttum. Á grundvelli rannsóknarinnar eru settar fram hugmyndir að úrlausnum er varða móttöku og leiðsögn kennara á fyrsta starfsári.