Summary: | Markmið rannsóknar þessarar var að öðlast dýpri skilning á samstarfi skóla og heimila og finna leiðir til að þróa slíkt samstarf. Til að vinna að því markmiði var ákveðið að vinna eftir áætlun Joyce L. Epstein, félagsfræðings við John Hopkins University í Bandaríkjunum, um samstarf skóla, fjölskyldna og samfélags. Með rannsókninni var leitað svara við því hversu vel hugmyndafræði Epstein hentar íslenskum grunnskóla og hvernig mætti laga áætlun Epstein um slíkt samstarf að íslenskum veruleika. Rannsóknin var starfendarannsókn og fór fram í Oddeyrarskóla á Akureyri með þátttöku kennara og stjórnenda skólans sem fylgdu áætlun um samstarf og unnu að forgangsverkefnum í samstarfi sínu við fjölskyldur. Tekin voru tólf viðtöl við kennara, foreldra og nemendur á rannsóknartímanum, auk þess sem lokamat var lagt fyrir alla foreldra nemenda skólans og kennara. Rannsóknin stóð skólaárin 2002– 2003 og 2003–2004. Megin niðurstöður rannsóknarinnar voru athyglisverðar. Samstarfsáætlun Epstein reyndist Oddeyrarskóla góð leið til að þróa og bæta samstarf skólans við fjölskyldur. Samstarfsáætlunin og það vinnulag sem lagt er til gafst vel. Bæði kennarar og foreldrar lýstu ánægju með samstarfið, skipulag þess og þann árangur sem náðist með þróunarverkefninu. Forgangsverkefni samstarfsins sem unnin voru seinna ár þróunarverkefnisins voru árangursrík að mati foreldra og kennara. Mikilvægasta niðurstaða þessa þróunarverkefnis var árangur sá er hlaust af átakinu þegar umsjónarkennarar sóttu fjölskyldur heim. Lokamat þróunarverkefnisins sýndi að það hafði jákvæð áhrif á störf flestra umsjónarkennara.
|