Jafnræði og samræmi í sönnunarkröfum Hæstaréttar í þjóðlendumálum

Í riti þessu er leitast við að varpa ljósi á sönnunarkröfur Hæstaréttar í þjóðlendumálum. Miðar umfjöllunin að svari við þeirri meginspurningu hvort Hæstiréttur hafi gætt jafnræðis og samræmis við gerð sönnunarkrafna í þjóðlendumálum á Íslandi. Ritið skiptist í tvo meginhluta, fræðilegan- og raunhlu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Fanney Hrund Hilmarsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12399
Description
Summary:Í riti þessu er leitast við að varpa ljósi á sönnunarkröfur Hæstaréttar í þjóðlendumálum. Miðar umfjöllunin að svari við þeirri meginspurningu hvort Hæstiréttur hafi gætt jafnræðis og samræmis við gerð sönnunarkrafna í þjóðlendumálum á Íslandi. Ritið skiptist í tvo meginhluta, fræðilegan- og raunhluta. Í hinum fyrrnefnda er lesandanum gefið tækifæri til að öðlast fræðilegan þekkingargrunn til að takast á við hinn síðari, raunhlutann. Í kafla eitt er lesandinn leiddur í vegferð þessa rits og honum gerð grein fyrir inntaki þess og meginviðfangsefni. Kafla tvö myndar almenn, fræðileg umfjöllun um eignarrétt. Í kafla þrjú þrengist umfjöllunin og beinist nær sértæku viðfangsefni þjóðlendumála á Íslandi, landeignum. Kafli fjögur er helgaður tilurð þjóðlendna með setningu þjóðlendulaga, hlutverki óbyggðanefndar og almennum sönnunarreglum í einkamálum. Þeim reglum sem gilda við meðferð dómstóla í þjóðlendumálum. Þar tekur við raunhlutinn sem skipar stærstan hluta ritsins, kafli fimm. Í þeirri umfjöllun er rannsókn á dómum Hæstaréttar í þjóðlendumálum kynnt, sönnunarkröfur greindar og bornar saman, með hliðsjón af meginspurningunni. Umfjöllun um niðurstöður í kafla sex leiðir fræðilega hlutann saman við raunhlutann. Þar eru helstu niðurstöður rannsóknarinnar teknar saman og fram sett rökstutt svar við meginspurningu ritsins. Svar á þá leið að Hæstiréttur hefur ekki gætt jafnræðis og samræmis við gerð sönnunarkrafna í þjóðlendumálum á Íslandi. Equality and consistency in the Supreme Court ́s demands of proof in public land cases - This thesis endeavours to illuminate the demands of proof brought by the Supreme Court in Iceland in public land cases. The coverage conducts to answer the main query whether the Supreme Court has verified equality and consistency in the demands of proof in public land cases in Iceland. The thesis is devided into two main sections, an theoratical section and an empirical section. In the former section the reader is given the opportunity to acquire the theoratical knowledge to address the ...