Stam : hvað er stam og hvernig ber að bregðast við því innan skólans?

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Talmeinið stam er einna mest rannsakaði talgallinn í heimi en þrátt fyrir það er ekki hægt að skýra orsakir hans. Helstu einkenni stams eru endurtekningar hljóða eða orða, lenging hljóða og festing eða lokun fyrir loftstrauminn sem lýsir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásdís Árnadóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1235
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Talmeinið stam er einna mest rannsakaði talgallinn í heimi en þrátt fyrir það er ekki hægt að skýra orsakir hans. Helstu einkenni stams eru endurtekningar hljóða eða orða, lenging hljóða og festing eða lokun fyrir loftstrauminn sem lýsir sér í mikilli spennu í talfærum. Það er mjög misjafnt við hvaða aðstæður fólk stamar, sumir stama mikið en aðrir lítið. Samhliða staminu þróast mjög oft ýmis aukaeinkenni sem verða gjarnan meira áberandi en stamið sjálft. Tíðni stams á meðal fullorðinna er um 1% en ef taldir eru með allir þeir sem einhvern tíma hafa stamað fer tíðnitalan upp í 5%. Ástæða þess er sú að mjög algengt er að börn byrji að stama en vaxi upp úr því. Mun líklegra er að stúlkur vaxi upp úr stami en drengir. Stami barn enn þegar það hefur grunnskólagöngu eru miklar líkur á því að það muni stama alla ævi. Líf þeirra sem stama stjórnast oft af staminu. Það virkar gjarnan sem félagsleg fötlun þar sem að einstaklingarnir sem stama draga sig til hlés og forðast að miklu leyti samskipti við annað fólk. Jafnframt getur það haft áhrif á framtíðarstörf þessara einstaklinga þar sem að þeir treysta sér oft ekki í frekara nám þegar grunnskóla líkur vegna hræðslu við að tala fyrir framan annað fólk. Aðeins hluti stamsins er heyranlegur og sýnilegur, innra með þessum einstaklingum brjótast margvíslegar tilfinningar sem erfitt getur verið að vinna úr. Ýmsar kenningar eru uppi um orsakir stams og byggjast þær á líffræðilegum þáttum, umhverfisáhrifum og málþroska þeirra sem stama. Í grunnskólum landsins stama að meðaltali um einn til tveir af hverjum hundrað nemendum. Það er mjög misjafnt hvaða aðstoð þessir nemendur fá innan veggja skólanna. Æskilegt er að þeir fái aðstoð talmeinafræðinga en jafnframt er ýmislegt sem kennarar geta gert til að auðvelda þessum nemendum skólagönguna.