Stefnumótun og áætlanagerð ráðuneyta. Leiðir að einföldun og samhæfingu

Fræðigrein Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs setti sér það verkefni í samstarfsyfirlýsingu árið 2009 að vinna að 20/20 Sóknaráætlun fyrir Ísland. Niðurstöður úr greiningarvinnu og gagnasöfnun 20/20 Sóknaráætlunar urðu í framhaldi grunnurinn að stefnumarkandi framtí...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Héðinn Unnsteinsson 1970-, Pétur Berg Matthíasson 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12294
Description
Summary:Fræðigrein Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs setti sér það verkefni í samstarfsyfirlýsingu árið 2009 að vinna að 20/20 Sóknaráætlun fyrir Ísland. Niðurstöður úr greiningarvinnu og gagnasöfnun 20/20 Sóknaráætlunar urðu í framhaldi grunnurinn að stefnumarkandi framtíðarsýninni, Ísland 2020. Eitt af verkefnum Íslands 2020 er að einfalda, fækka og samþætta helstu stefnur og áætlanir sem ráðuneyti og stofnanir hafa verið að setja fram á síðastliðnum árum. Grundvöllur þeirrar vinnu var greining á 11 stefnum og áætlunum með það að leiðarljósi að fækka þeim, samþætta og einfalda en jafnframt vinna heildstæðar tillögur að breyttu skipulagi fyrir stefnumótun og áætlanagerð innan stjórnsýslunnar. Greiningin á stefnunum var unnin sem hluti af verkefninu um einföldun og fækkun stefna og áætlana. Heildargreiningin var upp á 198 greiningarþætti. Af þeim voru 108 til staðar (55%), 52 voru að hluta til staðar (26%) og 38 voru ekki til staðar (19%). Þegar litið er til grunnþáttanna, eins og hvort stefnan eða áætlunin byggi á rann sóknum eða greiningum þá kemur það almennt nokkuð vel út úr greiningunni. Greiningin leiðir í ljós að styrkleiki stjórnsýslunnar felist í undirbúningi, greiningu og setningu markmiða. Veikleiki stjórnsýslunnar felst m.a. í skorti á tengingu við fjármagn, ófullnægjandi framkvæmd og tak markaðri eftirfylgni. Í greininni eru lagðar fram tillögur að nýrri framtíðarsýn í stefnumótun innan stjórnsýslunnar. Þær fela í sér að bæta yfirsýn og vinnu brögð, m.a. með því að fækka stefnum og áætlunum, tengja stefnumótun og áætlanagerð ráðuneyta við undirbúning fjárlaga og tryggja að árangursmat og eftirlit sé alltaf fyrir hendi. The coalition government in Iceland launched the 20/20 Moving Iceland Forward Initiative in 2009. The results of the data collection and the analysis that took place as part of that initiative led to the strategic vision, Iceland 2020. One of the objectives set out in Iceland 2020 is to simplify, reduce and integrate major policies and plans of ...