Börn og stærðfræði : leikur, leikföng og bækur

Þessi ritgerð er til B.Ed. prófs í kennaradeild við Háskólann á Akureyri. Ritgerðin fjallar um börn frá fæðingu til sex ára aldurs og stærðfræði í daglegu lífi þeirra. Komið verður inn á hvernig þau nota stærðfræði og hvernig þau læra hana. Á þessum aldri notar barn aðallega óformlega stærðfræði. Ei...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birgitta Pálsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12261
Description
Summary:Þessi ritgerð er til B.Ed. prófs í kennaradeild við Háskólann á Akureyri. Ritgerðin fjallar um börn frá fæðingu til sex ára aldurs og stærðfræði í daglegu lífi þeirra. Komið verður inn á hvernig þau nota stærðfræði og hvernig þau læra hana. Á þessum aldri notar barn aðallega óformlega stærðfræði. Einnig verður fjallaðu um leik og hvernig stærðfræði birtist í leik barna. Fjallað verður um frjálsan leik, borð- og teningaleiki og kubbaleik. Þá verður fjallað um leikföng sem eru stærðfræði tengd eða jafnvel framleidd til að ýta undir stærðfræðikunnáttu barna, leikföng eins og kubba, einingakubba og Lego (e) kubba. Spil eru oft stærðfræðitengd, sérstaklega spilin 52 en hér verður fjallað um þau sem og um nokkra spilaleiki. Fjallað verður um stærðfræði í barnabókum en sumar eru gerðar með það í huga að kenna börnunum stærðfræði. Fjallað verður um nokkrar bækur, þá sérstaklega um hverja bók. Einnig er hér umfjöllun um spil sem er búið til af höfundi ritgerðarinnar.