Flæði í leikskóla

Verkefnið er lokað til 31.5.2014. Í ritgerðinni, sem lögð er fram til B.Ed.-gráðu við Háskólann á Akureyri, verður fjallað um flæði í leikskólum. Leitast er eftir að svara spurningunum hvað er flæði og hvernig það birtist í leikskólastarfi? Varpað verður ljósi á aðferðafræðina flæði, sem sálarfræðin...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigurbjörg Þórunn Marteinsdóttir 1982-, Unnur Helga Marteinsdóttir 1973-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12259
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 31.5.2014. Í ritgerðinni, sem lögð er fram til B.Ed.-gráðu við Háskólann á Akureyri, verður fjallað um flæði í leikskólum. Leitast er eftir að svara spurningunum hvað er flæði og hvernig það birtist í leikskólastarfi? Varpað verður ljósi á aðferðafræðina flæði, sem sálarfræðingurinn Mihaly Csikszentmihalyi setti fram. Skoðuð verða tengslin á milli flæðis og annarra hugtaka eins og jákvæðrar sálfræði og lýðræðis. Starf leikskólakennarans er mikilvægt í flæðinu, en farið verður yfir hans hlutverk og hvað sé gott fyrir hann að hafa í huga í starfi sínu. Leikur barnanna sýnir fram á gildi hans fyrir börnin og hversu mikilvægt það er fyrir þau að fá næði til að nálgast leikinn. Farið verður yfir leik barnanna í tengslum við barnið sjálft og skráningar. Skráningar gefa leikskólakennurum betri mynd af starfi sínu og getur því verið gott að gefa sér tíma til að vinna úr skráningum. Með skráningum frá leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga skoðum við hvort munur sé á leik barnanna eftir kynjum þeirra. Auk þess sem við kynnumst leikskólanum Ásgarði lítillega, en þar hefur verið unnið eftir flæði í tvö ár, með góðum árangri. Með ritgerðinni fylgir svo hugmyndabanki að stöðvum fyrir leikskóla sem vinna með flæði. Þar má finna fróðleik sem gott er að hafa með sér á hverri stöð fyrir sig þar sem farið er yfir alla þá þroskaþætti sem starf með börnum getur eflt. Einnig verða birtar þar hugmyndir að vinnutilhögun stöðvanna sem og veittar einhverjar hugmyndir að verkefnum fyrir hverja stöð.