Grænfáninn og umhverfismennt : viðhorf starfsfólks Grænfánaleikskóla

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Megintilgangur hennar er að skoða viðhorf starfsfólks leikskóla til Grænfánaverkefnis Landverndar. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir helstu hugmyndafræðingum sem fjallað hafa um börn og náttúru. Þrátt fyrir að sumar...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Bryndís Hafþórsdóttir 1980-, Hrafnhildur Unnur Einarsdóttir 1977-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12245
Description
Summary:Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Megintilgangur hennar er að skoða viðhorf starfsfólks leikskóla til Grænfánaverkefnis Landverndar. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir helstu hugmyndafræðingum sem fjallað hafa um börn og náttúru. Þrátt fyrir að sumar kenningarnar séu komnar til ára sinna eiga þær vel við í kennslufræðum nútímans. Fjallað er um sjálfbærni, umhverfismennt, útikennslu og Grænfánaverkefnið. Skólar á Íslandi hafa sýnt menntun til sjálfbærni mikinn áhuga og þeir innleiða hana til dæmis með því að taka þátt í verkefnum eins og Grænfánaverkefni Landverndar, auka útikennslu og stofna útiskóla. Í seinni hluta ritgerðarinnar er greint frá aðferðafræði rannsóknar sem gerð var um viðhorf starfsfólks leikskóla til Grænfánaverkefnis Landverndar. Fjórir leikskólar tóku þátt í rannsókninni, tveir á Norðurlandi og tveir á Austurlandi. Spurningalisti var unninn á netinu og sendur til þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar myndrænt fram auk þess sem settar eru upp krosstöflur og forvitnilegar niðurstöður bornar saman. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að starfsfólk leikskólanna var almennt mjög ánægt með Grænfánaverkefni Landverndar. Það sem helst var sett út á í sambandi við Grænfánaverkefnið var að það væri ekki nægilega vel kynnt fyrir foreldrum. Einnig töldu sumir þátttakendur að þeir þekktu ekki alla þætti verkefnisins nógu vel.