Leikur í leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla : hver er staða hans og hvernig má nýta hann í fjölmenningarlegu skólastarfi?

Verkefnið er lokað til 1.6.2014. Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni hennar er fjölmenningarleg kennsla og leikur og hvernig nota megi leikinn til að stuðla að aðlögun nýbúabarna og hjálpa þeim að læra íslensku. Rannsóknarspurninga...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Þórdís Eva Þórólfsdóttir 1981-, Hildur Sif Sigurjónsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12220
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 1.6.2014. Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni hennar er fjölmenningarleg kennsla og leikur og hvernig nota megi leikinn til að stuðla að aðlögun nýbúabarna og hjálpa þeim að læra íslensku. Rannsóknarspurningar ritgerðarinnar eru: „Hver er staða leiks í leikskólum og á yngsta stigi grunnskóla?“ og „Hvernig geta leikskólar og yngsta stig grunnskóla nýtt leikinn til að aðstoða nýbúabörn við að aðlagast skólanum, læra íslensku og eignast vini?“ Ritgerðin skiptist í tvo hluta, fræðilegan hluta sem unninn er út frá heimildum og viðtalsrannsókn þar sem viðhorf kennara til leiks voru könnuð. Í fyrri hlutanum er fjallað um leik og tengsl hans við nám í skólastarfi, stöðu leiks í leik- og grunnskólum, hvernig megi ná fram samfellu milli skólastiga og hvernig leikur og fjölmenning kemur fram í aðalnámskrá leik- og grunnskóla. Einnig er komið inn á fjölmenningarlegt skólastarf með áherslu á leik, móttöku og aðlögun nýbúabarna, hlutverk kennara í fjölmenningarlegu skólastarfi og gildi leiks og vináttu fyrir nýbúabörn. Í seinni hlutanum er gerð grein fyrir rannsókninni og niðurstöðum hennar Viðtöl voru tekin við tvo kennara; einn leikskólakennara og einn grunnskólakennara, sem báðir höfðu umtalsverða reynslu af móttöku, aðlögun og vinnu með nýbúabörnum. Í niðurstöðunum kemur fram að leikur er notaður markvisst í aðlögun nýbúabarna í leikskólanum og töluvert á yngsta stigi grunnskóla. Einnig að leikur er talinn góð leið til að aðstoða nýbúabörn að aðlagast skólastarfinu, læra íslensku og eignast vini. The following thesis is the final assignment for a B.Ed. degree at the faculty of Education at the University of Akureyri. The subject is multicultural teaching and play and how play can be used to help immigrant children adapt to the school system and learn Icelandic. The thesis‘s research questions are ,,What position does play hold in early childhood education?“ and ,,How can play be used in early childhood education to help ...