KEA : ímynd og samfélagsleg ábyrgð

Verkefnið er lokað til 25.5.2050 KEA var afar umfangsmikið í atvinnurekstri nær alla tuttugustu öldina. Á ýmsu hefur gengið í rekstri félagsins en alltaf hefur stjórnendum tekist að sigla félaginu í gegnum öldurótið og KEA er í dag þriðja elsta fyrirtæki í samfelldum rekstri á Íslandi. Undir lok tut...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigmundur Guðni Sigurðsson 1968-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12214
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 25.5.2050 KEA var afar umfangsmikið í atvinnurekstri nær alla tuttugustu öldina. Á ýmsu hefur gengið í rekstri félagsins en alltaf hefur stjórnendum tekist að sigla félaginu í gegnum öldurótið og KEA er í dag þriðja elsta fyrirtæki í samfelldum rekstri á Íslandi. Undir lok tuttugustu aldarinnar var efnahagsástand á Íslandi erfitt. Háir raunvextir reyndust KEA erfiðir viðfangs á sama tíma og félagið var mjög skuldugt. Þessi staða leiddi til mikilla breytinga á rekstri KEA. Breytingarnar fólust í því að félaginu var skipt upp í hlutafélög – fyrirtækjavæðing KEA hófst. Lagt var af stað með tvær rannsóknarspurningar: Hver er ímynd KEA í hugum félagsmanna? Hefur þátttaka KEA í samfélagslegum verkefnum áhrif á ímynd félagsins? Svo bættist þriðja spurningin við: Hefur KEA-kortið áhrif á ímynd KEA? Til að svara þessum spurningum var útbúin spurningakönnun og send á alla sem skráðir voru á netfangalista KEA-kortsins eins og hann var í byrjun apríl 2012. Svör bárust frá 1.114 aðilum. Af þeim voru 74% félagsmenn í KEA og eru niðurstöður skýrslunnar unnar út frá svörum þeirra. Niðurstöðurnar gefa mjög skýra mynd af ímynd KEA í hugum félagsmanna. Ímyndin verður að teljast góð því 85% félagsmanna telja ímynd KEA vera frekar jákvæða eða jákvæða. Enn afdráttarlausari afstaða kom fram varðandi þátttöku KEA í samfélagslegum verkefnum því rétt tæplega 90% félagsmanna telja hana hafa frekar jákvæð eða jákvæð áhrif á ímyndina. Í rannsókninni var einnig könnuð afstaða félagsmanna til KEA-kortsins og hvort kortið hefði áhrif á ímynd KEA. Notkun á kortinu er mjög mikil, 83% félagsmanna nota kortið einu sinni í viku eða oftar. Um aðra þætti sem skoðaðir voru má segja að almennt ríki ánægja með kortið og þá umgjörð sem því er búin. Lykilorð: Ímynd, orðspor, samfélagsleg ábyrgð, KEA-kortið, hagsmunaaðili.