Summary: | Fjölmiðlabærinn Akureyri fagnar 160 ára afmæli árið 2012, því er við hæfi að rekja fjölmiðlasöguna á afmælisárinu. Í ritgerðinni eru flest öll þau fréttablöð sem hafa verið gefin út á Akureyri frá því prenteinokun á Íslandi var afnumin, árið 1852. Þessi saga spannar 160 ár og eru tekin fyrir í ritgerðinni, stærstu fréttablöðin, sem og þær flestar þær útvarps- og sjónvarpstöðvar sem hafa verið starfræktar á Akureyri. Tekin voru viðtöl við forsvarmenn þeirra fjölmiðla sem starfræktir eru í dag, auk viðtala við nokkra forsvarmenn fjölmiðla sem hafa lagt upp laupana. Þessi yfirferð er ekki tæmandi en margir fjölmiðlar s.s. útvarpsstöðvar sem hafa verið starfræktar í stuttan tíma fá ekki pláss í ritgerðinni sem og þau tímarit og smærri blöð sem hafa verið gefin út á Akureyri.
|