„Maður hefur lært helling í rauninni á því að vera í fangelsi“ : rannsókn á reynslu fanga um fangelsisdvöl í fangelsinu á Akureyri og fangelsinu við Kópavogsbraut

Verkefnið er lokað til 15.6.2012. Í vestrænum þjóðfélögum er lagt mikið upp úr því að markmið fangelsisvistar sé betrunarvist. Í því felst að umhverfi innan fangelsa á að vera uppbyggjandi fyrir einstaklinga og veita þeim möguleika á að koma lífi sínu í réttan farveg. Ef betrunarvist á að eiga sér s...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sara Sigurvinsdóttir 1989-, Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12135
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 15.6.2012. Í vestrænum þjóðfélögum er lagt mikið upp úr því að markmið fangelsisvistar sé betrunarvist. Í því felst að umhverfi innan fangelsa á að vera uppbyggjandi fyrir einstaklinga og veita þeim möguleika á að koma lífi sínu í réttan farveg. Ef betrunarvist á að eiga sér stað þá er mikilvægt að aðbúnaður sé fullnægjandi, samskipti manna á milli séu mannleg, byggist á virðingu og nægilegt framboð sé á skipulögðum athöfnum innan fangelsa. Þegar betrunarvist skilar tilsettum árangri veitir það einstaklingum möguleika á að snúa aftur til samfélagsins sem betri menn. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á líðan fanga með því að horfa til félagslegra tengsla og aðbúnaðar í fangelsum. Beitt er eigindlegum rannsóknaraðferðum þar sem viðtöl voru tekin til þess að afla gagna. Til að fá betri yfirsýn á aðstæður fanganna var ákveðið að taka viðtöl við fanga bæði í fangelsinu á Akureyri og í fangelsinu við Kópavogsbraut. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að þátttakendur telja sig vera í góðum félagslegum tengslum bæði innan sem utan fangelsisveggjanna. Aftur á móti eru tengslin misjafnlega góð þegar betur er að gáð. Niðurstöður sýna einnig að þátttakendur telja sig ekki hafa nóg fyrir stafni og vilja að aukið sé við framboð á athöfnum innan fangelsanna. Ef litið er til aðbúnaðar í hvoru fangelsinu fyrir sig þá sýna niðurstöður að þátttakendur, sem afplána í fangelsinu á Akureyri, eru ánægðari með aðbúnað en þeir sem dvelja í fangelsinu við Kópavogsbraut. Þá sýna niðurstöðurnar að almennt séð eru þátttakendur ánægðir með fangelsisdvöl sína að undanskilinni frelsissviptingunni og telja þeir að fangelsisdvölin eigi eftir að skila tilsettum árangri. The Western societies have made a goal that prison is correctional facility. This implies that the environment within prisons should be empowering for each individual and giving them the option to bring their lives into the proper channels. For the correctional facility to occur it is important that facilities are adequate, communication ...