Draumurinn : leikgerð og uppsetning

Lokaverkefni mitt Draumurinn er uppsetning og leikgerð fyrir börn og unglinga sem ég skrifaði upp úr leikriti Williams Shakespeare, Draumi á Jónsmessunótt. Leikverkið var sett upp sumarið 2011 í félagsheimilinu Valfelli í Borgarbyggð. Markmið verkefnisins var tvíþætt. Annarsvegar til þess að skapa u...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ása Hlín Svavarsdóttir 1960-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12113
Description
Summary:Lokaverkefni mitt Draumurinn er uppsetning og leikgerð fyrir börn og unglinga sem ég skrifaði upp úr leikriti Williams Shakespeare, Draumi á Jónsmessunótt. Leikverkið var sett upp sumarið 2011 í félagsheimilinu Valfelli í Borgarbyggð. Markmið verkefnisins var tvíþætt. Annarsvegar til þess að skapa ungu fólki í Borgarbyggð tækifæri til að vinna skapandi að uppsetningu á leikverki og til að kynnast þeirri fjölbreyttu vinnu er liggur þar að baki. Hinsvegar var stefnt að því að efla félagslega stöðu og færni þátttakenda með samvinnu, tengslamyndun, lýðræðislegum vinnubrögðum og nánu samstarfi við nærsamfélagið. Í vinnunni lagði ég áherslu á að hinir ungu þátttakendur kæmu að sem flestum þáttum uppsetningarinnar svo sem tónlistarflutningi, lýsingu, búningagerð, leikskrárgerð og markaðssetningu. Grunnþættir í nýrri menntastefnu voru hafðir að leiðarljósi í vinnunni, s.s. sjálfbærni, lýðræði, mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Í fyrri hluta greinargerðarinnar ber ég vinnuna saman við uppeldis- og menntakenningar, grunnþætti í nýrri aðalnámskrá og leiklistarkenningar. Í þeim síðari segi ég frá aðdraganda verkefnisins, leikgerðarsmíðum, framkvæmd á verkþáttum uppsetningarinnar, samstarfi við fjölskyldur þátttakenda og fleira. My final MA‐project is an adaptation for young audiences and a staged performance of Shakespeare‘s A Midsummer Night‘s Dream. Produced in the summer of 2011 in the community centre Valfell (located in Borgarbyggð, Iceland). The project had two goals; On one hand, to give the youth of Borgarbyggð an opportunity to work in a creative manner on a theatrical production of a play and thereby getting acquainted with the diverse tasks that such productions require. On the other hand, the goal was to enhance the social skills of the participants through collaboration, formal and informal interactions, democratic methods, and a close co-operation with the local community. Throughout my work I emphasised that the participants themselves should partake in as many aspects of the production as possible, such ...