Uppruni og myndun Ingólfsfjalls. Jarðlagaeiningar og myndanir í Ingólfsfjalli syðra

Ingólfsfjall er fjall á suðvesturlandi sem rís upp úr suðurlands-undirlendinu með skriðum sem ná fjallinu að miðju og hömrum girt á allar hliðar en ávallt á norður hliðina er tengist Grafningi. Hliðar fjallsins ganga nær hornrétt á hvor aðra með bröttum klettum. Fjallið er stapi og hefur greinilega...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Daníel Einarsson 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12067
Description
Summary:Ingólfsfjall er fjall á suðvesturlandi sem rís upp úr suðurlands-undirlendinu með skriðum sem ná fjallinu að miðju og hömrum girt á allar hliðar en ávallt á norður hliðina er tengist Grafningi. Hliðar fjallsins ganga nær hornrétt á hvor aðra með bröttum klettum. Fjallið er stapi og hefur greinilega stapalögun. Jarðfræði fjallsins er þó ekki svo einföld heldur eru jarðlagaeiningar og landmótun fjallsins fjölbreytt og oft flókin. Uppbyggingu og myndun fjallsins má skipta í þrjár ólíkar myndanir. Neðst er eldri móbergsmyndun sem er að mestu hulinn skriðum en er sjáanlegt í suðvestur horni Ingólfsfjalls. Þar ofan á eru setlög af jökulrænum uppruna og innan um setið eru þunn og mismunandi hraunlög. Þessi eining markar skil á milli tveggja ólíkra móbergseininga. Jarðlög þessara eininga hafa að hluta til verið rofin niður af jöklum ísaldar. Ofan á leggst yngri móbergsmyndun og hraundyngja þar ofan á. Yngra móbergið og dyngjan mynda saman sjálfan stapann. Þessi upptalning virðist lýsa einfaldri uppbyggingu fjallsins, en er flóknari þegar fjallið er skoðað nánar. Hér er markmiðið að skoða hverja einingu betur með fyrri rannsóknir að leiðarljósi til að fá betri mynd af jarðsögu Ingólfsfjalls. Ingólfsfjall is a mountain in southwest Iceland rising up from the southern-lowlands with landslides that cover the mountain to the center of its steep slopes, cliff-ringed on all sides except the north side where it connects to Grafningur. The sides of the mountain are almost perpendicular to each other by steep cliffs. The mountain is a table mountain which you can clearly see by its visual features. Although the geology of the mountain is not that simple, but the strata units and landscaping of the mountain is often complex. The structure and formation of the mountain can be divided into three different formations. At the bottom is an older tuff formation that is largely hidden underneath landslides but is visible in the southwest corner of Ingólfsfjall. There on top are sediments of glacial origin and within these sediment are ...