Árif langvinnra verkja á heilsutengd lífsgæði eldra fólks : heimildasamantekt

Heimildasamantekt þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Viðfangsefni hennar er að fræðast um og skoða áhrif langvinnra verkja á heilsutengd lífsgæði eldra fólks. Við heimildaleit voru notuð gagnasöfnin Cinahl og leitir.is. Einnig voru notaðir heimildarlista...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Soffía Hauksdóttir 1965-, Svala Björk Einarsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12028
Description
Summary:Heimildasamantekt þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Viðfangsefni hennar er að fræðast um og skoða áhrif langvinnra verkja á heilsutengd lífsgæði eldra fólks. Við heimildaleit voru notuð gagnasöfnin Cinahl og leitir.is. Einnig voru notaðir heimildarlistar þeirra greina sem þar voru að finna. Við gagnaúrvinnslu var notast við Mendeley sem er gagna og heimildavinnsluforrit. Eldra fólk er stækkandi hópur í íslensku samfélagi og mikilvægt er fyrir þennan hóp að hjúkrunarfræðingar einbeiti sér að heilsu og því að gæða árin lífi frekar en að einblína á sjúkdóma. Langvinnir verkir eru oft fylgifiskar langlífis, þeir eru stórt heilsufarsvandamál og sjúkdómur í sjálfu sér og algengi þeirra er vanmetið. Verkir og heilsutengd lífsgæði eru huglæg upplifun og mikilvægt er að einstaklingar séu virkir þátttakendur í meðferð sinni. Lyfjameðferð er þungamiðja meðferðar við langvinnum verkjum og getur vanmeðhöndlun haft í för með sér margskonar aukaverkanir. Þörf fyrir aðstoð eykst með auknum aldri, en þörfin er jafnvel ekki til staðar án verkjanna. Langvinnir verkir hafa margvísleg áhrif á líkamlega og sálræna líðan, félagslega virkni og starfshæfni. Auk þess sættir eldra fólk sig frekar við þær skerðingar sem langvinnir verkir hafa í för með sér, heldur en yngra fólk gerir. Helstu niðurstöður eru þær að langvinnir verkir hafa áhrif á lífsgæði eldra fólks með margvíslegum hætti. Er því mikilvægt fyrir hjúkrunarfræðinga að líta heildrænt á aðstæður fólks til að aðstoða það við að finna styrkleika sína til að yfirstíga hindranir lífsins og auka lífsgæði. Lykilhugtök: langvinnir verkir, lífsgæði, eldra fólk, 65+. This literature review is a graduating thesis for a BS degree in nursing from the University of Akureyri. The subject of it is to learn about and explore the effect of chronic pain on health-related quality of life among older people. Our findings are based on references found in databases on Cinahl and leitir.is. Reference lists of the articles that were found were also ...