Helstu ástæður þess að nemendur á heilbrigðisvísindasviði íhuga að hverfa frá námi

Verkefnið er lokað til 10.5.2013. Með örri þróun í tækni hafa fleiri geta nýtt sér fjölbreytt námsframboð háskólanna. Til viðbótar við hefðbundið staðarnám geta sífellt fleiri einstaklingar nýtt sér fjarnám og fjarkennslu til að nema í sinni heimabyggð þar sem háskólar eru ekki til staðar. Félagsleg...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ingibjörg Ásta Sigurðardóttir 1974-, Jökulrós Grímsdóttir 1952-, Arna Óskarsdóttir 1975-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12018
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 10.5.2013. Með örri þróun í tækni hafa fleiri geta nýtt sér fjölbreytt námsframboð háskólanna. Til viðbótar við hefðbundið staðarnám geta sífellt fleiri einstaklingar nýtt sér fjarnám og fjarkennslu til að nema í sinni heimabyggð þar sem háskólar eru ekki til staðar. Félagslegar aðstæður nemenda eru mismunandi og námsmannahópurinn er fjölbreyttur. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvað hefði haft áhrif á ákvörðun þeirra nemenda sem höfðu íhugað að hverfa frá háskólanámi en ákveðið að halda áfram og hvaða félagslegar aðstæður voru einkennandi fyrir þann hóp. Rannsóknin var megindleg og voru fengin gögn úr spurningalistakönnun, sem unnin var af starfshópi um brottfall í Háskólanum á Akureyri (HA) og lögð fyrir nemendur HA í apríl 2011. Úrtakið voru nemendur í hjúkrunar- og iðjuþjálfunarfræði en alls svöruðu 130 nemendur í þeim hópi. Svarhlutfallið var 52% hjá hjúkrunarfræðinemum og 37% hjá iðjuþjálfunarfræðinemum. Tölfræðileg úrvinnsla rannsóknarinnar var gerð í Exel töflureikni og myndrit unnin í Pivot veltitöflu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að meirihluti nemenda voru giftir eða í sambúð og meirihluti hjúkrunarfræðinema voru með börn í sinni forsjá en voru í minnihluta hjá iðjuþjálfunarfræðinemum. Það kom einnig í ljós að meirihluti nemenda voru á námslánum og var sambærilegt á milli hópa. Helstu ástæður sem nefndar voru hjá nemum sem íhugðu að hætta námi voru að námið væri of krefjandi, vegna fjárhagsaðstæðna og persónulegra aðstæðna. Það sem hafði helst áhrif á ákvörðun þeirra sem ákváðu að halda áfram námi var góður stuðningur frá fjölskyldu, vinum og samnemendum. Rannsakendur vonast til að niðurstöðurnar hjálpi fagfólki innan heilbrigðis- og menntakerfisins til þess að skilgreina félagslegt umhverfi og mæta þörfum nemenda og efla þá í námi. Lykilorð: Fjarnemi, staðarnemi, hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði. With the rapid developments in technology, more people can now take advantage of the wide range of university courses available. In addition to conventional ...