Gleymda lífsmarkið? : rannsóknaráætlun um talningu, mat og skráningu á öndunartíðni

Verkefnið er lokað til 10.5.2015. Tilgangur ritgerðarinnar var að útbúa rannsóknaráætlun með það að markmiði að kanna hvort hjúkrunarfræðingar á hand- og lyflækningadeildum á Landspítala (LSH) og Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) telji, meti og skrái öndunartíðni með öðrum lífsmarkamælingum. Sambærileg...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Eyrún Harpa Hlynsdóttir 1978-, Fjóla S. Bjarnadóttir 1975-, Svanhildur Garðarsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12017
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 10.5.2015. Tilgangur ritgerðarinnar var að útbúa rannsóknaráætlun með það að markmiði að kanna hvort hjúkrunarfræðingar á hand- og lyflækningadeildum á Landspítala (LSH) og Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) telji, meti og skrái öndunartíðni með öðrum lífsmarkamælingum. Sambærileg rannsókn hefur ekki verið framkvæmd áður hér á landi og gæti því gefið góðar vísbendingar um hvernig þessum málum er háttað. Öndunartíðni er eitt það fyrsta sem breytist við versnun á ástandi sjúklings og er hún talin vera sú lífeðlisfræðilega breyta sem gefur hvað bestar vísbendingar um yfirvofandi versnun á ástandi sjúklings. Í erlendum rannsóknarniðurstöðum sem stuðst var við í ritgerðinni kom fram að hjúkrunarfræðingar telja almennt ekki öndunartíðni með öðrum lífsmörkum og kom fram að ástæður þess séu margvíslegar s.s. tímaskortur, mannekla, reynsluleysi og ónóg þekking. Við framkvæmd rannsóknarinnar mun verða notast við lýsandi megindlega rannsóknaraðferð og mun rannsóknin verða framkvæmd með spurningakönnun sem svarað verður rafrænt á internetinu. Niðurstöður spurningakönnunarinnar verða bornar saman við skráðar lífsmarkamælingar sjúklinga á viðkomandi deildum og verður þannig hægt að sjá hvort samræmi sé þar á milli. Takmarkanir rannsóknarinnar verða þær að rannsóknin verður einungis framkvæmd á tveimur stórum sjúkrahúsum og mun einungis ná til hand- og lyflækningadeilda. Með því að telja öndunartíðni sjúklinga reglulega væri að mati höfunda e.t.v. hægt að koma í veg fyrir óvæntar innlagnir á gjörgæsludeildir, hjartastopp og jafnvel dauða, með tímanlegum inngripum. Meginhugtök: Öndunartíðni, hjúkrunarfræðingur, vöktun lífsmarka. The main purpose of this thesis was to construct a research proposal, aiming to explore whether nurses in surgical and medical ward at The National University Hospital and Akureyri Hospital count, evaluate and register respiratory rate while monitoring other vital signs. A comparable study has not been done previously in Iceland and might therefore be valuable and give a good ...