Greining DNA skemmda með tvívíðum þáttháðum rafdrætti

Inngangur: Munnvatn er aðgengilegur líkamsvessi og hentar vel til sýnatöku. Ástand erfðaefnis í munnvatni gæti haft klíníska þýðingu sem merki um sjúkdóma í munnholi og mögulega endurspeglað almennt líkamsástand. Tvívíður þáttháður rafdráttur (2D-SDE) er tækni til að greina margvíslegar skemmdir í f...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Albert Sigurðsson 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11989
Description
Summary:Inngangur: Munnvatn er aðgengilegur líkamsvessi og hentar vel til sýnatöku. Ástand erfðaefnis í munnvatni gæti haft klíníska þýðingu sem merki um sjúkdóma í munnholi og mögulega endurspeglað almennt líkamsástand. Tvívíður þáttháður rafdráttur (2D-SDE) er tækni til að greina margvíslegar skemmdir í flóknum kjarnsýrusýnum, m.a. einþátta brot í erfðaefni. Markmið rannsóknarinnar var að skilgreina getu 2D-SDE til að greina DNA skemmdir í munnvatni. Umhverfisþættir sem gætu haft áhrif á ástand erfðaefnis í munnvatni, m.a. reykingar og munntóbak, voru einnig skoðaðir. Efniviður og aðferðir: Um frumrannsókn var að ræða og munnvatnssýnum var safnað frá tveimur mismunandi hópum. Samtals voru sex þátttakendur, þrír í hvorum hóp. Í fyrsta lagi var um að ræða heilbrigðan viðmiðunarhóp. Sami hópur var einnig látinn reykja eina sígarettu og neyta eins skammts af munntóbaki. Í öðru lagi var um að ræða einstaklinga með munnholssjúkdóm. Erfðaefni var einangrað úr fyrrnefndum lífsýnum og greint með 2D-SDE. Að lokum voru niðurstöður úr 2D-SDE bornar saman við heilbrigðisupplýsingar. Niðurstöður: Hægt var að nota tvívíðan þáttháðan rafdrátt til að greina DNA skemmdir í lífsýnunum. Með tækninni greindist lítill sem enginn munur á munnvatnssýnum sem voru undir utanaðkomandi áhrifum, reykingum eða munntóbaki, í samanburði við heilbrigð munnvatnssýni. Í samanburði við blóðsýni greindust meiri skemmdir í öllum munnvatnssýnum þá sérstaklega einþátta brot. Úr hópi munnholssjúkdóma greindust áberandi einþátta og tvíþátta skemmdir í einstaklingi með Sjögrens heilkenni. Úr sama einstaklingi greindust einnig meiri einþátta brot ásamt öðrum minni skemmdum. Í öllum munnvatnssýnunum benti 2D-SDE mynstrið til þess að einþátta brot í DNA (e. nicking) hefðu verið til staðar. Fjöldi þessara einþátta brota var mismikill en verulega aukinn í munnvatni miðað við blóðsýni. Ályktanir: Fyrstu rannsóknir á byggingareiginleikum DNA og ástandi þess í munnvatni með 2D-SDE benda til þess að aðferðin geti hugsanlega gefið upplýsingar um skemmdir á DNA í ...