Sálfélagslegir áhrifaþættir heilsu ungbarna: fræðilegt yfirlit

Rannsóknir sýna að menntun, efnahagur og félagsleg staða foreldra hafa umtalsverð áhrif á heilsu barna. Vísbendingar eru um að efnahagsleg stéttaskipting hafi aukist hér á landi. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits er að varpa ljósi á stöðu þekkingar um sálfélagslega áhrifaþætti á heilsu ungbarna og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Herdís Pálsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11945
Description
Summary:Rannsóknir sýna að menntun, efnahagur og félagsleg staða foreldra hafa umtalsverð áhrif á heilsu barna. Vísbendingar eru um að efnahagsleg stéttaskipting hafi aukist hér á landi. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits er að varpa ljósi á stöðu þekkingar um sálfélagslega áhrifaþætti á heilsu ungbarna og hlutverk hjúkrunarfræðinga við að veita fjölskyldum í vanda ráðgjöf og stuðning. Upplýsinga var aflað úr rannsóknagreinum og opinberum gögnum. Niðurstöður benda til þess að börn foreldra í lægri stigum samfélagsins glími oft við heilsuvanda og hafa menntun og tekjur foreldra þar mest áhrif. Þessi börn eru jafnframt líklegri til að vera með lága fæðingarþyngd, astma, öndunarfærasjúkdóma, að vera í ofþyngd og aukin hætta er á röskun á tilfinninga- og vitsmunaþroska. Í ljósi rannsókna þyrfti mat á aðstæðum foreldra að fara fram á meðgöngu. Þá er auðveldara að finna fjölskyldur sem búa við sálfélagslegan vanda og að veita viðeigandi þjónustu í kjölfarið. Hjúkrunarfræðingar eru í góðri stöðu til þess að skima fyrir og meta líðan og aðstæður fjölskyldna vegna nálægðar sinnar við samfélagið og góðrar þekkingar á heilsueflingu og forvörnum. Auka þarf fræðslu heilbrigðisstétta um sálfélagslega áhrifaþætti á heilsu barna og um árangursrík úrræði. Jafnframt þarf að efla rannsóknir á sviðinu sem og stefnumótun og gera skipulag þjónustu við þá sem minna mega sín markvissara. Research has shown that the education and social standing of parents has a significant impact on children’s health. There are indications that class difference has increased in Iceland. The purpose of this literature review is to examine the current status of research into the impact of psycho-social factors on infant health and the role of nurses in giving families in need counseling and support. Information was collected from peer-reviewed articles and public records. The results indicate that children of parents from lower classes of society often have health problems and that the education and income level of the parents are the main indicating factors ...