Hraunflæði á höfuðborgarsvæðinu: Saga hraunflæðis á svæðinu á nútíma og kortlagning mögulegra farvega til byggða

Þessi ritgerð fjallar um hvernig hraunflæði hefur verið háttað í átt til höfuðborgarsvæðisins á nútíma og eftir hvaða leiðum búast megi við að hraun muni flæða í átt til svæðisins eftir vatnasviðum þess. Er þá reiknað með að hraunið flæði niður í móti líkt og vökvi. Ekki er reynt að ákvarða hvernig...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Daníel Páll Jónasson 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11887
Description
Summary:Þessi ritgerð fjallar um hvernig hraunflæði hefur verið háttað í átt til höfuðborgarsvæðisins á nútíma og eftir hvaða leiðum búast megi við að hraun muni flæða í átt til svæðisins eftir vatnasviðum þess. Er þá reiknað með að hraunið flæði niður í móti líkt og vökvi. Ekki er reynt að ákvarða hvernig hraunflæði muni breiðast út innan byggðar eða í kringum hana en þó er staðfræði meginfarvega kortlögð til að gefa mynd af mögulegri útbreiðslu. Tekin eru dæmi um hraunflæðilíkön sem hönnuð hafa verið til að ákvarða útbreiðslu hrauna og fjallað um þær forsendur sem þurfa að liggja á baki reiknilíkans fyrir hraunflæði. Hraunflæði á nútíma er sett í samhengi við þá jarðfræðilegu og jarðeðlisfræðilegu þætti sem orsakað hafa að Mið-Atlantshafshryggurinn nær upp fyrir sjávarmál á Reykjanesi. Fjallað er um eldvirkni á síðustu ísöld og nútíma ásamt þeim eldsummerkjum sem eftir hana liggja; móbergsfjöll, móbergshryggi, dyngjur og hraunbreiður. Jarðskjálftahrinur og eldsumbrotahrinur í fjórum eldstöðvakerfum skagans ásamt einkennum kerfanna eru útskýrð en þó sérstaklega einkenni Krýsuvíkurkerfisins og Brennisteinsfjallakerfisins. Úr þessum kerfum hafa hraun runnið til höfuðborgarsvæðisins og munu líklega gera í framtíðinni. Yrði byggð í Mið-Hafnarfirði og Vallahverfi þá helst í hættu. Farið er yfir gerð viðbragðsáætlana vegna hraunflæðis í umræðum en slíkar áætlanir eru ekki til staðar fyrir höfuðborgarsvæðið. Fjallað er um hvernig eldstöðvakerfin eru vöktuð og hver þróunin hefur verið í þenslu og skjálftavirkni síðustu ár. Endað er á að telja upp þau atriði sem rannsaka þyrfti betur til að ákvarða hættu af völdum hraunflæðis til svæðisins. This essay features analysis of lava flows that have reached the Reykjavík metropolitan area during Holocene and a prediction of future lava flow paths toward the area within its water basins. Here, it is presumed that the lava will flow downhill like water. The spreading of the lava flow within or just outside the metropolitan area is not calculated thoroughly but topography of estimated ...