Umhverfisbreytingar í Arnarfirði á nútíma. Götungarannsókn á sjávarsetskjarna

Staðsetning Íslands, mitt í hringiðu strauma- og loftslagskerfa Norður Atlantshafsins, veldur fjölbreytilegu veðurfari hér á landi. Ólíkir hafstraumar umlykja landið, annars vegar flytur Irmingerstraumurinn hlýjan og saltan sjó að landinu úr suðri og hins vegar berst kaldur og seltulítill sjór með A...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Rósa Jónsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11878
Description
Summary:Staðsetning Íslands, mitt í hringiðu strauma- og loftslagskerfa Norður Atlantshafsins, veldur fjölbreytilegu veðurfari hér á landi. Ólíkir hafstraumar umlykja landið, annars vegar flytur Irmingerstraumurinn hlýjan og saltan sjó að landinu úr suðri og hins vegar berst kaldur og seltulítill sjór með Austur-Grænlandsstraumnum úr norðri. Skilin milli þessara tveggja straumakerfa kallast pólarfrontur og eru þau í dag staðsett rétt norður af Vestfjörðum en hafa færst til í gegnum jarðsöguna háð styrkleika straumanna. Árið 2010 var sjávarsetskjarni tekinn í Arnarfirðinum, sem er annar stærsti fjörður Vestfjarða. Ekki hafa áður verið gerðar rannsóknir á seti Arnarfjarðar svo ekki liggja fyrir önnur sambærileg gögn né heldur aldursgreiningar á kjarnanum en líklega spannar hann síðustu u.þ.b. 10.000 árin. Í þessari rannsókn var segulviðtak kjarnans mælt og einnig var kjarnanum lýst með tilliti til setfræðilegra þátta eins og byggingareinkenna, litabreytinga, gjósku og skelja. Auk þess var alls 27 sýnum safnað úr kjarnanum á u.þ.b. 20 cm fresti. Þriðja hvert sýni var skoðað í víðsjá og úr hverju þessara sýna taldir um 200 götungar og greindir til tegunda. Samsetningu götungafánu má nota til að túlka umhverfisbreytingar og breytingar á sjávarstraumum. Með götungagreiningu, á sjávarsetskjarnanum úr Arnarfirði, er greinilegt að umtalsverðar umhverfisbreytingar hafa orðið í Arnarfirði á nútíma. Tegundir sem lifa við sterka og kalda botnstrauma einkenna elsta hluta kjarnans en því ofar sem dregur í kjarnanum verður tegundafánan líkari því sem þekkist við t.d. Ísafjarðardjúp í dag. Í heild sinni eru aðstæður í firðinu að breytast eftir ísöld og fleiri götungategundir ná að festa sig í sessi því ofar sem dregur í kjarnanum. Iceland is located in the North Atlantic Ocean. The oceanographic system around Iceland is dominated by the Irminger Current transporting heat and nutrients from the south, and East-Greenland Current, which brings cold and fresh polar water from the north. The present-day oceanographic Polar Front, which ...