Vatnsmagn í gleri bólstrabergs á Reykjanesi og við Þórisvatn. Tenging við þrýsting og jökulfarg

Ísland er eldfjallaeyja í N-Atlantshafi staðsett á mörkum rekhryggs sem skilur í sundur N-Ameríkuflekann og Evrasíuflekann. Undir Íslandi er auk þess möttulstrókur sem gerir landið að heitum reit. Mörg eldfjöll á Íslandi eru hulin jökli. Þrýstingurinn frá jöklinum hefur áhrif á leysni reikulla efna...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Sif Sigurðardóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11863
Description
Summary:Ísland er eldfjallaeyja í N-Atlantshafi staðsett á mörkum rekhryggs sem skilur í sundur N-Ameríkuflekann og Evrasíuflekann. Undir Íslandi er auk þess möttulstrókur sem gerir landið að heitum reit. Mörg eldfjöll á Íslandi eru hulin jökli. Þrýstingurinn frá jöklinum hefur áhrif á leysni reikulla efna í kviku og eftir því sem þrýstingurinn eykst verður leysni þeirra meiri. Þegar kvika kemur upp á yfirborðið undir þykkum jökli hraðkælist hún og bólstrar myndast. Þrýstingurinn gerir það að verkum að reikul efni ná ekki að skilja sig frá kvikunni og þau verða hluti af berginu. Reikul efni geyma því upplýsingar um þann þrýsting sem veittur var á eldstöðina þegar bergið storknaði. Út frá magni reikulla efna er hægt að meta hversu þykkur jökull eða djúpt vatn var yfir eldstöðinni þegar gos átti sér stað. Sýni voru tekin af glerrimum bólstrabergs við Þórisvatn, Bolaöldu, Kleifarvatn og tveimur námum við Sveifluháls. Vatnsmælingar voru framkvæmdar á sýnunum í litrófssjá, þau voru efnagreind og útreikningar gerðir á þrýstingi og þykkt jökulsins. Tvö sýni, frá Kleifarvatni og fyrri námunni (Undirhlíðar) við Sveifluháls, innihéldu talsvert magn af vatni eða allt að ~0.39wt% sem samsvarar 130m þykkum jökli. Jökullinn sem lá yfir Reykjanesi á síðustu ísöld var 70-400m þykkur og eru niðurstöður verkefnisins innan þeirra marka. Sýni frá Þórisvatni innihélt 0.3wt% af vatni sem jafngildir 75m þykkum ís. Á síðustu ísöld var jökullinn við miðju landsins 1000-1500m þykkur og því er ólíklegt að bólstrarnir hafi myndast undir honum. Hin sýnin innihéldu ~0.08-0.26wt% sem samsvara 0-55m þykkum jökli. Bólstraberg myndast við mun meiri þrýsting og því er ólíklegt að bólstrarnir mynduðust undir jökli. Líklegast er að kvikan hafi afgasast áður en hún storknaði í bólstraberg. Iceland is a volcanic island in the N-Atlantic ocean positioned on the edge of a spreading ridge that separates the N-American plate and the Eurasian plate. Beneath Iceland there is also a mantle plume which makes it a hot spot. Many volcanoes in Iceland are covered by ...