Winter distribution and foraging activity of Great Skuas Stercorarius skua

Sjófuglar eru flestir langlífir, með háar lífslíkur á milli ára, verða seint kynþroska og eignast fá afkvæmi á ári. Flestar rannsóknir á sjófuglum hafa verið gerðar á varptíma en ástæða þessa er aðallega sú að sjófuglar halda sig í byggðum (kóloníum) og flestir þeirra dvelja langdvölum á hafi úti ut...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ellen Magnúsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11853
Description
Summary:Sjófuglar eru flestir langlífir, með háar lífslíkur á milli ára, verða seint kynþroska og eignast fá afkvæmi á ári. Flestar rannsóknir á sjófuglum hafa verið gerðar á varptíma en ástæða þessa er aðallega sú að sjófuglar halda sig í byggðum (kóloníum) og flestir þeirra dvelja langdvölum á hafi úti utan varptíma. Þekking okkar á vistfræði sjófugla að vetrarlagi er þess vegna afar takmörkuð. Sumarið 2008 voru dægurritar settir á 40 fullorðna skúma (Stercorarius skua) á Breiðamerkursandi, Íslandi, 16 á eyjunni Foula, Skotlandi og 24 á Bjarnareyju, Noregi. Þegar dægurritarnir voru endurheimtir á sömu stöðum næstu 3 ár, var unnt að finna út staðsetningar fuglanna yfir vetratímann (staðsetningar teknar tvisvar á dag) út frá birtustigi með tilliti til tíma. Dægurritarnir skrá einnig upplýsingar um seltustig en út frá þeim upplýsingum má meta hve miklum tíma fuglarnir eru að eyða í fæðuöflun (á flugi) á móti tíma varið í hvíld (sitjandi á sjó). Alls endurheimtust 23 dægurritar með gögnum á árunum 2009-2011. Rannsóknarspurningar verkefnisins voru: 1) Hvar eru vetrarstöðvar skúma frá Íslandi, Noregi og Skotlandi? 2) Hversu mikinn tíma eru skúmarnir að nota í fæðuleit á vetrarsvæðum sínum og er það mismunandi á milli vetrasvæða? Vetrarsvæðunum var skipt í fimm svæði; (1) NV-Afríka, (2) Íberíuskagi, (3) Biscay flói, (4) austurströnd N-Ameríku og (5) hafsvæðið vestur af Írlandi. Íslenskir skúmar dreifðu sér á svæði 1, 2, 3 og 4. Skoskir fuglar héldu sig eingöngu austanmegin Atlantshafsins, á svæði 1, 2 og 3 og fuglar frá Bjarnareyju voru á öllum vetrarsvæðunum. Einnig tóku fimm einstaklingar sig til og ferðuðust á milli vetrarsvæða veturinn 2008-2009. Þar sem 17 af 22 skúmum héldu sig á einu ákveðnu vetrarsvæði veturinn 2008-2009 var hægt að finna út hvort munur væri á tíma í fæðuleit (á flugi) á milli vetrarsvæða. Fuglar á öllum svæðum virtust eyða svipuðum tíma á flugi fyrir utan svæði 1, NV-Afríku, þar sem töluvert minni tími fór í flug en á hinum svæðunum. Fimm einstaklingar ferðuðust á milli vetrasvæða en virtust hagnast ...