Kínverskir ferðamenn á Íslandi. Þekking, reynsla, hömlur og tækifæri

Kína er nú á meðal þeirra ferðaþjónustumarkaða sem hraðast vaxa. Þann 12. apríl 2004 skrifuðu Ísland og Kína undir ADS-ferðamálasamning. Samningurinn markaði upphaf formlegra hvað varðar gagnvirkt flæði ferðamannahópa, sem sendir eru frá Kína, og gerir Kínverjum kleift að ferðast til Íslands í skipu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dagný Fjóla Ómarsdóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11806
Description
Summary:Kína er nú á meðal þeirra ferðaþjónustumarkaða sem hraðast vaxa. Þann 12. apríl 2004 skrifuðu Ísland og Kína undir ADS-ferðamálasamning. Samningurinn markaði upphaf formlegra hvað varðar gagnvirkt flæði ferðamannahópa, sem sendir eru frá Kína, og gerir Kínverjum kleift að ferðast til Íslands í skipulögðum hópum. Markmið þessara rannsóknar er að skoða þekkingu, reynslu, hömlur og tækifæri ýmissa aðila á Íslandi sem tengjast kínversku ferðamennskunni, og hvernig þeir eru að færa sér í nyt möguleikana sem samningarnir opnuðu. Við gagnaöflun var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir og sjö hálfstöðluð viðtöl sem tekin voru við aðila sem allir tengjast kínverskri ferðamennsku á einhvern hátt. Niðurstöður sýndu fram á einn helsti tálmi ferðamannastraums Kínverja til Vesturalanda og þar á meðal Íslands er hversu flókið og ill sótt er að fá farar leyfir í formi vegabréfsáritunar. Bæði kíversk stjórnvöld og sendiskrifstofa áfangalands þurfa að koma að því ferli. Þeir sem til Íslands komu heilluðust einkum af náttúrunni. Ennfremur mátti ráða af rannsókninni að Kínverjum líður best á meðal samlanda sinna og vilja kínverskan mat þegar þeir ferðast. Loks leiddu niðurstöðurnar í ljós að íslenskir ferðaþjónustuaðilar sjá mörg tækifæri á kínverskum ferðamarkaði, og að helst þurfi að hafa kínverskumælandi starfsmann í Kína til að ná sem bestum árangri. Kína er stórt land, og erfitt að ná yfirsýn um öll tækifærin sem þar bjóðast China is among the fastest growing outbound travel markets today. On the 12th of April, 2004, China and Iceland signed the bilateral agreement ADS (Approved Destination Status) which permits Chinese people to travel to Iceland as a part of a leisure tour group. Qualitative research methods were used to collect data, and seven people, all engaged with Chinese tourism in Iceland, were interviewed. Results show that although Chinese people are interested in Iceland, their knowledge of the country is limited. Those who had already visited to Iceland were satisfied with their stay and theyr were ...