Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves. Markaðssetning og skipulag

Viðburðaferðamennska er tiltölulega nýtt fyrirbæri sem hefur öðlast viðurkenningu frá því hún hófst. Tónlistarhátíðir flokkast undir viðburðaferðamennsku. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefur verið haldin árlega í Reykjavík frá árinu 1999 og hefur vaxið mikið síðan þá. Markmið rannsóknarinnar var...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Lilja Sigurðardóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11775
Description
Summary:Viðburðaferðamennska er tiltölulega nýtt fyrirbæri sem hefur öðlast viðurkenningu frá því hún hófst. Tónlistarhátíðir flokkast undir viðburðaferðamennsku. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefur verið haldin árlega í Reykjavík frá árinu 1999 og hefur vaxið mikið síðan þá. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvernig markaðssetningu Iceland Airwaves er háttað og athuga markaðsmál erlendra hátíða til samanburðar. Einnig var athugað hvernig skipulagi hátíðarinnar er háttað og hvers konar ferðamenn sækja hátíðina. Í fræðilegri nálgun er meðal annars fjallað um viðburðarferðamennsku, tónlistarferðamennsku og markaðssetningu viðburða. Tekin voru tvenn viðtöl við stjórnendur Iceland Airwaves og starfsmann Glastonbury hátíðarinnar í Bretlandi til samanburðar. Viðtölin gáfu innsýn í starf þeirra sem nýttist rannsókninni vel. Þetta rannsóknarefni er áhugavert að því leyti að Iceland Airwaves er stærsta tónlistarhátíð Íslendinga og hefur fengið alþjóðlegt lof gagnrýnenda. Auk þess laðar hátíðin að marga ferðamenn til Íslands á hverju ári. Hún skapar einnig Íslandi góða ímynd og kemur íslenskum tónlistarmönnum og hljómsveitum á framfæri. Glastonbury hátíðin var valin til samanburðar vegna þess að hún er stærsta tónlistar-og listahátíð Evrópu og hefur verið farsæl í gegnum tíðina. Helstu niðurstöður sýndu að litlum sem engum pening er varið í markaðssetningu fyrir Iceland Airwaves hátíðina. Í niðurstöðum kemur einnig fram að helstu markmið Iceland Airwaves hátíðarinnar eru m.a. að auka ferðamannastreymi til landsins á lágannatímabili og koma íslenskum tónlistarmönnum á framfæri. Að lokum verða dregnar ályktanir og hugmyndir höfundar um megin þýðingu og mikilvægi niðurstaðnanna með tilliti til fræðilega kaflans. Lykilhugtök: Viðburðatengd ferðaþjónusta, tónlistarhátíðir, markaðssetning tónlistarviðburða, Iceland Airwaves hátíðin, Glastonbury hátíðin. Event tourism is a relatively new phenomenon that has gained approval since it began. Music festivals are classified under event tourism. The Iceland Airwaves music ...