Frá hugmynd til framkvæmdar. Viðskiptaáætlun

Markmið þessarar ritgerðar er bæði hagnýtt og fræðandi en hvatinn að skrifum hennar kom eftir að höfundur fékk hugmynd um að skapa sitt eigið atvinnutækifæri. Sú hugmynd varð að viðskiptaáætlun og er upprunaleg hugmynd þessarar ritgerðar, en til þess að ritgerðin verði sem hagnýtust fyrir starfsemi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Bergmann Björnsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11746
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er bæði hagnýtt og fræðandi en hvatinn að skrifum hennar kom eftir að höfundur fékk hugmynd um að skapa sitt eigið atvinnutækifæri. Sú hugmynd varð að viðskiptaáætlun og er upprunaleg hugmynd þessarar ritgerðar, en til þess að ritgerðin verði sem hagnýtust fyrir starfsemi fyrirtækisins er fyrri hluti hennar fræðilegur með tilliti til frumkvöðlaháttar og nýsköpunar. Fræðilegi hluti ritgerðarinnar fjallar um hugtökin frumkvöðull, frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun og hvernig þessir þættir tengjast nýsköpun í ferðaþjónustu. Einnig verður fjallað um hvernig viðskiptaáætlun mótast frá því að vera hugmynd í framkvæmd. Seinni hluti ritgerðarinnar samanstendur af viðskiptaáætlun fyrir fyrirtæki sem hyggst nýta sér nýsköpun í ferðaþjónustu með því að hanna og forrita fræðandi snjallsímaforrit fyrir erlenda ferðamenn sem heimsækja Reykjavík. Í þeim hluta verður ítarlega fjallað um stefnumótun fyrirtækisins, eigendur og rekstrarform, söluvöruna, hönnun, forritun og virkni forritsins og farið yfir markaðs- og samkeppnisgreiningu, markaðs-, sölu- og framkvæmdaráætlun og svo loks fjárhagsáætlun fyrirtækisins. Ritgerðin mun vonandi koma til með að vera stefnumótandi plagg fyrir fyrirtækið til framtíðar. Lykilorð: Frumkvöðull, Frumkvöðlastarfsemi, Nýsköpun, Ferðaþjónusta, Reykjavík