Yfirfærsla ungmenna með langvinnan heilsuvanda úr heilbrigðisþjónustu barna yfir í heilbrigðisþjónustu fullorðinna. Fræðilegt yfirlit

Yfirfærsla ungmenna með langvinnan heilsuvanda er skipulagt ferli sem tekst á við margþættar þarfir ungmenna þegar heilbrigðisþjónusta þeirra flyst úr heilbrigðisþjónustu barna yfir í heilbrigðisþjónustu fullorðinna. Þekkingu um yfirfærslu hefur fleygt fram á alþjóðavísu en hér á landi eru til fáar...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Birna Hrönn Björnsdóttir 1984-, Arnfríður Silja Gylfadóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11697
Description
Summary:Yfirfærsla ungmenna með langvinnan heilsuvanda er skipulagt ferli sem tekst á við margþættar þarfir ungmenna þegar heilbrigðisþjónusta þeirra flyst úr heilbrigðisþjónustu barna yfir í heilbrigðisþjónustu fullorðinna. Þekkingu um yfirfærslu hefur fleygt fram á alþjóðavísu en hér á landi eru til fáar heimildir um yfirfærslu og ekki eru til verkferlar eða leiðbeiningar á íslensku. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að skoða áhrifaþætti yfirfærslu ungmenna með langvinnan heilsuvanda úr heilbrigðisþjónustu barna yfir í heilbrigðisþjónustu fullorðinna. Eftirfarandi rannsóknarspurning var sett fram: Hvernig er hægt að tryggja árangursríka yfirfærslu ungmenna og auka þannig öryggi þeirra í heilbrigðisþjónustu? Leitað var í gagnasöfnum Scopus, Pubmed, Google fræðasetri og á vefsíðum faglegra samtaka og stofnana. Niðurstöður sýna að árangur yfirfærslunnar hefur áhrif á heilsuhegðun ungmenna, aðlögun þeirra að heilbrigðisþjónustu fullorðinna og færni þeirra til sjálfsumönnunar. Yfirfærsla getur aðeins orðið árangursrík ef hún er gerð í skipulögðu samstarfi þeirra aðila sem að henni koma og unnið er eftir verkferlum byggðum á gagnreyndri þekkingu. Niðurstöður sýna jafnframt að hjúkrunarfræðingar geta orðið leiðandi aðilar í yfirfærslunni í hlutverki samhæfingaraðila. Settar eru fram tillögur að almennum verkferlum sem gætu nýst ungmennum, aðstandendum og heilbrigðisstarfsfólki við yfirfærslu. Lykilorð: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingar, langvinnur heilsuvandi, ungmenni, yfirfærsla. Transition is described as the purposeful, planned movement that manages the complex needs of adolescents with chronic health care conditions from child-centred to adult-oriented health care services. Knowledge about transition has developed rapidly worldwide but in Iceland there are few sources on transition and there are no available procedures or instructions in Icelandic. The aim of this literature review was to evaluate factors influencing transition from pediatric to adult care. The following research questions were put forward: ...