Að njóta vafans : leikskólakennarinn og barnavernd

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Ofbeldi gegn börnum á Íslandi er veruleiki sem horfast verður í augu við og viðurkenna. Börn eru skilgreind sem börn fram að 18 ára aldri og það er skylda hinna fullorðnu að veita þeim vernd og hlúa að grunnþörfum þeirra. Þegar brotalami...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hrafnhildur F. Kristinsdóttir, Rut Viktorsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1160
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Ofbeldi gegn börnum á Íslandi er veruleiki sem horfast verður í augu við og viðurkenna. Börn eru skilgreind sem börn fram að 18 ára aldri og það er skylda hinna fullorðnu að veita þeim vernd og hlúa að grunnþörfum þeirra. Þegar brotalamir verða á uppeldisskilyrðum barna ber yfirvöldum skylda að hlutast til um að tryggja velferð þeirra. Flest börn á Íslandi dvelja einhvern hluta úr degi í leikskóla eða grunnskóla og eru kennarar því mikilvægir í lífi barna. Kennarastéttin verður að vera vel undirbúin til þess að takast á við viðkvæm barnaverndarmál en þeim ber lagaleg skylda til þess að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef þá grunar að ekki sé allt með felldu. Kennarastéttin þarf að hafa grunnþekkingu á helstu einkennum og afleiðingum ofbeldis gegn börnum til þess að geta komið auga á og greint slík tilvik. Jafnframt þarf hún að vera meðvituð um það hverjir séu í mestri hættu sem þolendur eða gerendur. Markmið þessarar ritgerðar var að kanna hvort og þá hversu vel leikskólakennarar eru í stakk búnir til að takast á við barnaverndarmál. Gerð var rannsókn meðal allra starfandi fagmenntaðra leikskólakennara á Akureyri varðandi stöðu þeirra gagnvart barnaverndarmálum. Alls tóku 80 leikskólakennarar þátt sem er rúmlega 94 % af öllum starfandi fagmenntuðum leikskólakennurum á Akureyri. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að leikskólakennarar þurfi á meiri fræðslu og undirbúningi að halda og jafnframt telji þeir mikilvægt að áætlun um hvað skuli gera ef upp komi barnaverndarmál sé til staðar í hverjum leikskóla. Ljóst er að opna þarf umræðuna um ofbeldi gegn börnum á Íslandi og fræða þarf kennarastéttina mun betur um barnavernd og tilkynningarskylduna.