Þróunarleg sérstaða íslenskra skógarþrasta, metin út frá hvatbera DNA

Skógarþrestir skiptast í tvær undirtegundir Turdus iliacus iliacus og T. i. coburni. T. i. coburni er undirtegund sem verpir á Íslandi og stöku sinnum í Færeyjum. Íslenska undirtegundin hefur vetursetu á Írlandi, Skotlandi, Bretlandi, norður Frakklandi og á Íberíuskaga og er töluvert stærri, dekkri...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sölvi Rúnar Vignisson 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Gen
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11592
Description
Summary:Skógarþrestir skiptast í tvær undirtegundir Turdus iliacus iliacus og T. i. coburni. T. i. coburni er undirtegund sem verpir á Íslandi og stöku sinnum í Færeyjum. Íslenska undirtegundin hefur vetursetu á Írlandi, Skotlandi, Bretlandi, norður Frakklandi og á Íberíuskaga og er töluvert stærri, dekkri og hefur gulbrúnni grunnlit í andliti, á brjósti og undirstélþökum samanborið við T. i. iliacus sem er útbreidd á meginlandi Evrópu og allt austur að 165°A, nánar tiltekið Chukotka Autonomous Okrug í Rússlandi. Ég safnaði sýnum af fuglum sem veiddir voru í Skógræktinni í Fossvogi, einangraði DNA og bar það saman við áður birtar erlendar DNA raðir. Með strikamerkingu (e. barcoding) fann ég vísbendingar fyrir því að það sé lítil sem engin aðgreining í hvatbera DNA með því að athuga hluta af COI (cytochrome c oxidase subunit I) geninu sem bendir til þess að sú aðgreining sem við sjáum í svipfari fuglanna sé fremur nýleg í þrónunarfræðilegum skilningi. Þessi aðgreining gæti hafa verið drifin áfram af náttúrulegu vali eða hröðum tilviljunakenndum breytingum sem gætu hafa átt sér stað í litlum landnámsstofni skógarþrasta á Íslandi. Því er með vissu hægt að segja að þessi gögn styðji ekki kenningu um langan aðskilnað íslenskra skógarþrasta frá öðrum skógarþröstum á meginlandi Evrasíu. The Redwing is a bird in the thrush family Turdidae. It has two subspecies Turdus iliacus iliacus and T. i. coburni. T. i. coburni breeds in Iceland and the Faroe Islands and winters in Ireland, Scotland, northern France and in Iberia. It is darker overall, larger and has buffier underparts compared to T.i iliacus which breeds in Eurasia. Data collection took place in Skógrækt Fossvogar, Reykjavík Iceland. I looked at sequence variation of the mtDNA COI (cytochrome c oxidase subunit I) used for an international barcode survey, and compared them with previously published sequences of T. i. iliacus. My data reveals that the isolated Icelandic stock in Iceland lacks the support in mtDNA gene trees for avian subspecies. However, phenotypic ...