"Ég heyri með nefinu" : áhrif forhugmynda nemenda á nám og kennslu

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Umfjöllunarefni þessa lokaverkefnis er forhugmyndir nemenda og hvernig þær geta haft áhrif á nám og kennslu. Athyglinni er beint að fræðunum sem búa að baki forhugmyndum nemenda þ.e. hugsmíðahyggju og helstu upphafsmönnum hennar, Piaget,...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Gunnhildur Lilja Sigmundsdóttir, Inga Eir Gunnarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1153
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Umfjöllunarefni þessa lokaverkefnis er forhugmyndir nemenda og hvernig þær geta haft áhrif á nám og kennslu. Athyglinni er beint að fræðunum sem búa að baki forhugmyndum nemenda þ.e. hugsmíðahyggju og helstu upphafsmönnum hennar, Piaget, Vygotsky, Ausubel og Bruner. Nám barna er skoðað og hvernig forhugmyndir hafa áhrif þar á. Auk þess er fjallað um nokkrar aðferðir sem hægt er að beita til að kanna hvaða forhugmyndir nemendur hafa og nokkrar þeirra kennsluaðferða sem taka tillit til forhugmynda nemenda. Til að varpa frekara ljósi á hvernig hægt er að kanna og taka tillit til forhugmynda nemenda var gerð lítil athugun í grunnskóla Akureyri hjá nemendum 2. og 4. bekkjar með gerð hugtakakorta. Viðfangsefnið athugunarinnar var hljóð. Niðurstöður athugunarinnar sýndu að með gerð hugtakakorta kom áhugasvið nemenda í ljós sem og þau atriði sem á þeim brenna í umhverfi þeirra. Ennfremur mátti greina breytingar á forhugmyndum og áhuga nemenda eftir aldri. Að lokum var velt upp leiðum sem byggja á að mæta nemendum á þeirra forsendum.