Betur má ef duga skal : nýliðinn í kennarastarfi

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2003. Tilgangur ritgerðarinnar var að leita svara við spurningum eins og hvernig nýliðum vegnar í starfi, hvernig móttökur þeir fe...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðbjörg Kristmundsdóttir, Guðfinna Steingrímsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1150
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2003. Tilgangur ritgerðarinnar var að leita svara við spurningum eins og hvernig nýliðum vegnar í starfi, hvernig móttökur þeir fengu á nýjum vinnustað, hvort þeir fengu stuðning og hvaða væntingar þeir hefðu til starfsins. Einnig hversu margir nýliðar hætta störfum á fyrstu árum kennslunnar. Í þessum tilgangi var saminn spurningarlisti og hann sendur út til þeirra einstaklinga sem útskrifuðust úr kennaradeild Háskólans á Akureyri á árunum 1999-2002. Helstu niðurstöður eru þær að nýliðar í kennslustörfum eru almennt ánægðir með störf sín og að brottfall úr kennslu hjá nýliðum er fátítt, þrátt fyrir að vinnuálag sé mikið og ýmsum erfiðleikum bundið. Bent er á nokkrar lausnir til að auðvelda nýliðunum fyrstu skrefin í kennslunni, því betur má ef duga skal.