Geldingarótti og geldingarþrá. Greining á 101 Reykjavík og Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helgason

Viðfangsefni ritgerðarinnar eru tvær bækur Hallgríms Helgasonar: Þetta er allt að koma (1994) og 101 Reykjavík (1996). Aðalpersónur verkanna verða greindar út frá kenningum Bakhtins um karnivalið, skrifum Judith Butler um leikið kyn og hugmyndum um hinn táknræna fallus. Hugmyndir um fallusinn eru mi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Olga Margrét Cilia 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11431
Description
Summary:Viðfangsefni ritgerðarinnar eru tvær bækur Hallgríms Helgasonar: Þetta er allt að koma (1994) og 101 Reykjavík (1996). Aðalpersónur verkanna verða greindar út frá kenningum Bakhtins um karnivalið, skrifum Judith Butler um leikið kyn og hugmyndum um hinn táknræna fallus. Hugmyndir um fallusinn eru miðlægar í báðum bókunum eins og við munum sjá. Í tilfelli Ragnheiðar Birnu, aðalsöguhetju Þetta er allt að koma, vill hún losna við hinn lesbíska fallus sem hefur verið þröngvað upp á hana svo að hún geti fengið kyngervi sitt sem konu staðfest af samfélaginu. Hin karnivalíska endurnýjun vinnur hins vegar á móti henni svo að staðfestingin fæst ekki fyrr en langt er liðið á ævi hennar. Aðalpersóna 101 Reykjavík, Hlynur Björn, er aftur á móti hræddur um að missa sinn fallus. Sú hræðsla er tilkomin vegna djúpstæðrar ödipusarduldar og þar af leiðandi geldingarótta.