Samstarf heimilis og leikskóla : hlutverk foreldra í þróunarstarfi

Verkefnið er lokað Þetta verkefni er lokaverkefni til B.Ed.gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í verkefninu fjöllum við um þróunarverkefni og hvernig samstarf leikskólakennara við foreldra er almennt háttað. Til að skoða þátt foreldra betur í þróunarverkefnum fjöllum við um þróunarverkefnið...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elín Helga Guðnadóttir, Heiðrún Jóhannsdóttir 1975-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1141
Description
Summary:Verkefnið er lokað Þetta verkefni er lokaverkefni til B.Ed.gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í verkefninu fjöllum við um þróunarverkefni og hvernig samstarf leikskólakennara við foreldra er almennt háttað. Til að skoða þátt foreldra betur í þróunarverkefnum fjöllum við um þróunarverkefnið Lífsleikni í leikskóla sem hófst í þremur leikskólum á Akureyri haustið 2001. Það fjallar um hvernig hægt er að efla siðferðisvitund barna og fullorðinna í þeim tilgangi að verða bæði fróð og góð. Verkefnið byggir á rannsóknum og kenningum sem gerðar hafa verið um siðferðis- og tilfinningaþroska barna og má þar nefna City Montessori School, Loris Malaguzzi, Howard Gardner, William Damon og Daniel Goleman. Til að rannsaka hvernig foreldrar koma að þessu verkefni tókum við viðtöl við verkefnisstjórana en þeir eru þrír, einn í hverjum leikskóla. Einnig lögðum við spurningalista fyrir foreldra barna fæddra 1998 í þessum þrem leikskólum. Niðurstöður sýndu meðal annars að foreldrum finnst þetta verkefni vera mjög jákvætt og telja að það muni nýtast barni þeirra í framtíðinni. Verkefnisstjórarnir telja að verkefnið krefjist meiri eftirfylgni af hálfu foreldra en samkvæmt niðurstöðum virðist það ekki komast til skila til foreldranna.