Tvítyngd leikskólabörn : aðstæður þeirra í leikskólum á Akureyri

Verkefnið er lokað Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2002. Tilgangurinn er að kanna aðstæður tvítyngdra barna í leikskólum á Akureyri. Í verkefninu er byrjað á að skilgreina helstu hugtök sem tengjast tvítyngi. Því næst...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Lilja Sævarsdóttir 1969-, Berglind Bergvinsdóttir 1977-, Sandra Dögg Sæmundsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1139
Description
Summary:Verkefnið er lokað Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2002. Tilgangurinn er að kanna aðstæður tvítyngdra barna í leikskólum á Akureyri. Í verkefninu er byrjað á að skilgreina helstu hugtök sem tengjast tvítyngi. Því næst er fjallað um máltöku tvítyngdra barna, tvítyngikennslu í leikskólum, fjölskylduaðstæður tvítyngdra og félagslega þætti tvítyngis. Til þess að fá innsýn í stöðu tvítyngdra leikskólabarna eru lagalegar forsendur fyrir tvítyngikennslu skoðaðar auk þess sem kannað er hvernig stefnumótun í þessum málum er háttað í Reykjavík og nágrannalöndunum. Í seinni hluta verkefnisins er fjallað um tvær rannsóknir sem gerðar voru í leikskólum á Akureyri fyrri hluta ársins 2002. Önnur rannsóknin segir til um fjölda tvítyngdra barna í leikskólum Akureyrarbæjar og það starf sem þar er unnið í þeirra þágu. Í hinni rannsókninni er kafað dýpra og leitað eftir sjónarmiðum starfsmanna annars vegar og foreldra hins vegar á aðstæðum tvítyngdra barna í leikskólum. Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að 4% barna í leikskólum á Akureyri eru tvítyngd eða fjöltyngd og eru tungumálin sem þau tala auk íslensku 15 talsins. Algengast var að börnin ættu erlenda móður og íslenskan föður. Í flestum leikskólunum er ekkert starf í gangi vegna tvítyngis barna og aðeins er unnið markvisst að þessum málum í einum leikskóla. Í viðtölum við foreldra koma fram mismunandi viðhorf til hlutverks leikskólans í uppeldi og menntun tvítyngdra barna auk þess sem væntingar foreldranna virðast mismiklar. Í máli leikskólakennaranna kemur fram að í leikskólunum er lögð ólík áhersla á þarfir þessara barna og starfið þar af leiðandi mismunandi. Mikilvægt er að vekja athygli starfsfólks leikskóla og yfirvalda á nauðsyn þess að marka stefnu í málefnum tvítyngdra barna til þess að réttur þessara barna sé virtur.