Sjálfsvíg í Grænlandi. Sögulegar og félagslegar skýringar

Hér verður reynt að rekja ýmsar útskýringar orsaka hárrar sjálfsvígstíðni á Grænlandi. Grænland á við alvarlegt heilsufars- og félagslegt vandamál sjálfsvíga að stríða sem ekki þekktist áður fyrr. Sjálfsvígin eru fyrst og fremst framin af ungum karlmönnum á aldrinum 15-25 ára. Þessi þróun er ólík þe...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Svanlaug Árnadóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11378
Description
Summary:Hér verður reynt að rekja ýmsar útskýringar orsaka hárrar sjálfsvígstíðni á Grænlandi. Grænland á við alvarlegt heilsufars- og félagslegt vandamál sjálfsvíga að stríða sem ekki þekktist áður fyrr. Sjálfsvígin eru fyrst og fremst framin af ungum karlmönnum á aldrinum 15-25 ára. Þessi þróun er ólík þeirri sem varð á Vesturlöndum þar sem sjálfsvíg verða algengari með aldrinum. Í ritgerðinni verða rök færð fyrir því að í kjölfar snöggrar nútímavæðingar á samfélagi inúíta eftir seinni heimstyrjöldina hafi sjálfsvígsalda skollið á landið. Kenningum Durkheim um tengsl sjálfsvíga og nútímavæðingar verður beitt og hugtök Bourdieu um habitus og illusio verða notuð til að útskýra það umrót sem varð á umhverfi og félagsaðstæðum inúíta. Hvernig hefðbundnir lifnaðarhættir inúíta voru ekki lengur fullgiliar innan samfélagsins og dugðu því ekki til að takast á breyttar aðstæður nútímasamfélags. Vitnað verður í ýmsar rannsóknir sem gerðar hafa verið í Grænlandi ásamt því að lýsa menningarlegum aðstæðum inúíta fyrir nútímavæðingu. Auk þess verður lögð áhersla á að skoða sögulegar orsakir. Niðurstöður ritgerðar eru að nýlenduvæðing og nútímavæðing voru orsakir þess að sjálfsvígstíðni Grænlands fór úr því að vera nær engin að verða ein sú hæsta í heimi