Green Machine. Markaðsáætlun fyrir Arctic Adventures maí - desember 2012

Rannsóknir hafa sýnt að fyrirtæki sem standa vel að gerð stefnumarkandi markaðsáætlana ná, að öllu jöfnu, betri árangri en þau sem gera það ekki. Markmið þessa MS-verkefnis er að gera stefnumiðaða markaðsáætlun til 8 mánaða fyrir nýtt jeppaferðavörumerki hjá ævintýraferðaskrifstofunni Arctic Adventu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dagný Ívarsdóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11358
Description
Summary:Rannsóknir hafa sýnt að fyrirtæki sem standa vel að gerð stefnumarkandi markaðsáætlana ná, að öllu jöfnu, betri árangri en þau sem gera það ekki. Markmið þessa MS-verkefnis er að gera stefnumiðaða markaðsáætlun til 8 mánaða fyrir nýtt jeppaferðavörumerki hjá ævintýraferðaskrifstofunni Arctic Adventures. Gerð var greining á núverandi aðstæðum á íslenska jeppaferðamarkaðinum með tilliti til viðskiptavina, keppinauta og ytra umhverfis. Í framhaldinu voru tækifæri og ógnanir ásamt styrkleikum og veikleikum í markaðsstarfinu metin. Að greiningarvinnunni lokinni voru sett fjárhagsleg og markaðsleg markmið fyrir vörumerkið. Því næst var skilgreind markaðsstefna sem tilgreinir til hvaða markhópa eigi að höfða og hver staðfærslan gagnvart þeim á að vera og hvernig beita skuli söluráðunum til að ná staðfærslunni fram. Að lokum var gerð áætlun fyrir innleiðingu markaðsstefnunar og áætlaður rekstrarreikningur fyrir tímabilið.