Baráttan um bjórinn. Birtingarmynd bjórbannsins á Íslandi í dag

Hið íslenska bjórbann hefur í gegnum tíðina verið mörgum hjartans mál og er óhætt að segja að bannið hafi verið umdeilt. Í yfir hálfa öld var bjór með öllu bannaður á Íslandi en af ýmsum ástæðum voru allar aðrar tegundir áfengis löglegar og því vert að skoða viðfangsefnið nánar. Það var ekki fyrr en...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðjón Ólafsson 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11345
Description
Summary:Hið íslenska bjórbann hefur í gegnum tíðina verið mörgum hjartans mál og er óhætt að segja að bannið hafi verið umdeilt. Í yfir hálfa öld var bjór með öllu bannaður á Íslandi en af ýmsum ástæðum voru allar aðrar tegundir áfengis löglegar og því vert að skoða viðfangsefnið nánar. Það var ekki fyrr en 1. mars árið 1989 sem bjór fór í almenna sölu hér á landi eftir að djúptækar samfélagsbreytingar höfðu á einn eða annan hátt leitt til afléttingar bannsins þar sem pólitísk staða, búseta og nútímavæðing spiluðu stórt hlutverk. Í umræðum þingmanna frá árinu 1988 má finna þau rök sem bæði fylgjendur og andstæðingar bjórbannsins báru fyrir sig í baráttunni um bjórinn. Eftir að spádómar þeirra höfðu verið skoðaðir nánar með rannsóknaraugum dagsins í dag má sjá að báðar fylkingar höfðu ýmislegt fyrir sér. Heildaráfengisneysla Íslendinga jókst til muna eftir afléttingu bannsins líkt og fylgjendur þess höfðu spáð fyrir um. Í takt við áherslur andstæðinga bannsins varð þó á sama tíma áberandi breyting á vínmenningu Íslendinga þar sem neysla léttra drykkja varð mun almennari og algengari en neysla sterkra drykkja. Viðtöl við þingmenn sem sátu á Alþingi þegar banninu var aflétt gefa viðfangsefninu athyglisverðan vinkil þar sem þingmenn fengu tækifæri til að tjá sig um birtingarmynd bjórbannsins í dag.