Fýsileikakönnun viðskiptahugmyndar: Radio Iceland: Ferðamannaútvarp

Í þessari ritgerð er fjallað um fýsileika viðskiptahugmyndar þess efnis að stofna útvarpsstöð sem ætlað er að höfða fyrst og fremst til ferðamanna með dagskrá á ensku. Til grundvallar þeirri athugun er í fyrsta hluta ritgerðarinnar umfjöllun um nýsköpun og frumkvöðlastarf með áherslu á einstaklingin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Magnús Dan Ómarsson 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11344
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um fýsileika viðskiptahugmyndar þess efnis að stofna útvarpsstöð sem ætlað er að höfða fyrst og fremst til ferðamanna með dagskrá á ensku. Til grundvallar þeirri athugun er í fyrsta hluta ritgerðarinnar umfjöllun um nýsköpun og frumkvöðlastarf með áherslu á einstaklinginn að baki starfseminni, sem drifkraft breytinga og þróunar á markaði. Fræðileg umfjöllun um frumkvöðlastarf er rakin og borin saman við rannsóknir á því sem mætti kalla innri hvata, eða persónulegar ástæður þess verknaðar sem birtist í nýsköpun. Eftir lýsingu á aðstæðum til nýsköpunar á Íslandi árið 2012 eru þær aðstæður sem túlka má sem viðskiptatækifæri leiddar í ljós. Fýsileikakönnun viðskiptahugmyndar byggir á ýtarlegri lýsingu þess rekstrar sem til könnunar er og lýsing á rekstraráformum er orðuð sem svo að framkvæmd áætlunarinnar standi í raun til. Fyrirhuguð starfsemi sem sameinar fjölmiðlarekstur og ferðaþjónustu krefst auk lýsingar á starfsemi og afurð, athugunar á rekstrarumhverfi útvarpsstöðva og ferðaþjónustu, einkennum og horfum. Með skipulagðri yfirferð þeirra forsendna og aðstæðna sem snerta rekstraráformin og að teknu tilliti til markaðskannana sem unnar voru fyrir þessa ritgerð meðal annarsvegar ferðamanna (væntanlegra hlustenda) og hinsvegar aðila í ferðaþjónustu, (væntanlegra auglýsenda) er að endingu komist að niðurstöðu um það hvort æskilegt sé að framkvæma hugmyndina.