Listin að lifa: List og minjagripagerð í Kulusuk þorpi á Austur Grænlandi

Ritgerðin fjallar um list og minjagripagerð í Kulusuk þorpi á Austur Grænandi. Skrifin byggja mikið á eigin reynslu sem nær yfir rúman áratug og eru því etnógrafískar lýsingar stór hluti hennar. Einnig er farið í fræðilega umfjöllun um list og þau hugtök sem tengjast því viðfangsefni. Ritgerð þessi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Eyjólfsdóttir 1970-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11337
Description
Summary:Ritgerðin fjallar um list og minjagripagerð í Kulusuk þorpi á Austur Grænandi. Skrifin byggja mikið á eigin reynslu sem nær yfir rúman áratug og eru því etnógrafískar lýsingar stór hluti hennar. Einnig er farið í fræðilega umfjöllun um list og þau hugtök sem tengjast því viðfangsefni. Ritgerð þessi er í hnotskurn umfjöllun um list og minjagripagerð í Kulusuk þorpi á Austur Grænlandi. Ég byggi skrif mín á reynslu sem nær yfir rúman áratug og styðst því mikið við etnógrafískar lýsingar og viðtöl sem ég hef tekið við ákveðna einstaklinga í Kulusuk. Auk almennar lýsingar á lífi fólks sem selur handverk sitt sem minjagripi til ferðamanna er samtvinnuð fræðileg umfjöllun um list og þau hugtök sem tengjast því viðfangsefni. Þar leita ég í smiðju mannfræðinga sem fjallað hafa um hugtakið list og bendi á ólíkar nálganir þeirra á viðfangsefnið. Ritgerðin var lengi í smíðum þar sem umfang hennar er tiltölulega mikið sem meistarverkefni í mannfræði. Ekki er um eina endanlega niðurstöðu í lokin nema að list og minjagripagerð í Kulusuk er á hverfandi hveli og fer það saman við byggðaþróun síðustu áratuga í Grænlandi.