Framfylgja Reykjavíkurborg og ríki lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla? Þróun framlaga til tónlistarnáms

Í ritgerð þessari er launakostnaður tónlistarskóla í Reykjavík borinn saman við framlög Reykjavíkurborgar og ríkis til tónlistarskólanna. Með þeim samanburði er komist að niðurstöðu sem segir til um að Reykjavíkurborg og ríki framfylgi ekki lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Þróun á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurður Orri Guðmundsson 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11316
Description
Summary:Í ritgerð þessari er launakostnaður tónlistarskóla í Reykjavík borinn saman við framlög Reykjavíkurborgar og ríkis til tónlistarskólanna. Með þeim samanburði er komist að niðurstöðu sem segir til um að Reykjavíkurborg og ríki framfylgi ekki lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Þróun á framlögum Reykjavíkurborgar til tónlistarskóla borgarinnar frá árinu 1995 fram til ársins 2012 er auk þess til athugunar í ritgerðinni. Til þess að geta tekið afstöðu hvað varðar stuðning Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla voru framlög fimm annarra sveitarfélaga á árunum 2008-2012 til tónlistarskóla skoðuð. Samanburður á framlögum sveitarfélaganna leiðir í ljós að hvergi er stuðningur við tónlistarskóla minni en í Reykjavík. Athugað er hvernig tónlistarskólar borgarinnar haga rekstri sínum miðað við núverandi fjárframlög og hvort skerðing framlaga hafi áhrif á skólastarf og þá menntun sem tónlistarskólarnir veita. Niðurstöður leiða í ljós að vegna lægri framlaga Reykjavíkurborgar hefur tónlistarnám borgarinnar beðið hnekki þar sem framboð og fjölbreytni náms hefur minnkað.