Starfsmannaráðningar og virkjun mannauðs í leit að þekkingu og færni

Vegna aukinnar samkeppni á vinnumarkaði undanfarin ár hefur skapast þörf hjá fyrirtækjum fyrir nýjar aðferðir við að auka afköst og bæta árangur starfsmanna. Auknar kröfur eru gerðar um að starfsmenn búi yfir ákveðinni þekkingu sem getur styrkt fyrirtækið í heild. Vel undirbúið ráðningarferli er ein...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Svava Júlía Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1130
Description
Summary:Vegna aukinnar samkeppni á vinnumarkaði undanfarin ár hefur skapast þörf hjá fyrirtækjum fyrir nýjar aðferðir við að auka afköst og bæta árangur starfsmanna. Auknar kröfur eru gerðar um að starfsmenn búi yfir ákveðinni þekkingu sem getur styrkt fyrirtækið í heild. Vel undirbúið ráðningarferli er einn af lykilþáttum til að sú þekking sem fyrirtækið þarfnast komi inn í fyrirtækið með nýráðningu starfsmanns. Mannauðsstjórnun er hluti af heildarstjórnun fyrirtækja og tryggir meðal annars að skipulagt ráðningarferli sé til staðar. Þekkingarstjórnun er nýtt hugtak í stjórnun og felst í að auka þekkingu starfsfólks ásamt því að virkja og nýta betur þá þekkingu sem er til staðar. Til að ferli mannauðsstjórnunar og þekkingarstjórnunar séu möguleg í fyrirtæki þurfa fræðilegar forsendur að liggja að baki heildarstefnumótun fyrirtækisins. Þegar þörf er á að ráða nýjan starfsmann, - er mikilvægt að vinna starfagreiningu vel. Stjórnendur standa frammi fyrir því að ákveða hvort þeir vilji vinna að ráðningarferlinu innan fyrirtækisins eða fá ráðningarskrifstofu til verksins með sérþjálfaða ráðgjafa í ráðningarferli. Íverkefninu eru dregin fram meginatriði við skipulagðan undirbúning ráðningarferlis í skipulagheildum og gerð sértök grein fyrir ráðningarþjónustu Mannafls. Jafnframt er gerð grein fyrir niðurstöðum úr samanburðarkönnun á ráðningaraðferðum fyrirtækja með starfsstöðvar bæði á Akureyri og í Reykjavík. Í ljós kemur að ekki virðist vera umtalsverður munur á ráðningaraðferðum – þó má segja að ráðning stjórnenda sé í fastari skorðum en ráðning almennra starfsmanna. Rannsóknarspurningar/tilgáta 1. Hvaða aðferðir nota fyrirtækin við ráðningar? 2. Hvort munur sé á aðferðum sem fyrirtæki/deildir á Akureyri beita samanborið við fyrirtæki/deildir í Reykjavík og ef svo er hver er sá munur? v 3. Tilgátan sem lagt var upp með er sú að fyrirtæki/starfsdeildir á Akureyri noti síður ráðningaþjónustu en móðurdeildir í Reykjavík og þá einkum vegna smæðar og minna fjármagns til að spila úr. Samkvæmt niðurstöðum úr rannsókn eru ...